Innlent

Lítið áunnist þrátt fyrir „fagurgala og falleg fyrirheit“ borgarinnar

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að svo virðist sem engar raunverulegar aðgerðir séu í gangi til að bæta úr leikskólavandanum. 
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að svo virðist sem engar raunverulegar aðgerðir séu í gangi til að bæta úr leikskólavandanum.  Vísir/Vilhelm

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir stöðuna í leikskólamálum í Reykjavík óásættanlega þar sem staðan heldur áfram að versna. Fagurgalar og falleg fyrirheit komi frá stjórnsýslunni sem leggur ekki í vinnuna sem til þurfi. Foreldrar hafa lýst yfir þungum áhyggjum vegna stöðunnar og hefur verið óskað eftir því að leikskólamálin verði sett á dagskrá borgarráðs á morgun. 

Úthlutun leikskólaplássa í Reykjavíkurborg hófst í gær og stendur yfir í rúman mánuð. Borgin greindi frá því áður en úthlutunin hófst að færri börn komist að eftir sumarið af ýmsum ástæðum, svo sem vegna framkvæmda.

Að minnsta kosti einn leikskóli tekur ekki við nýjum börnum í haust og tíu skólar til viðbótar takmarka fjöldann sem þau taka við, ýmist tímabundið eða til lengri tíma, vegna framkvæmda og flutninga. Þá hefur misjafnlega gengið að manna lausar stöður sem hafi áhrif.

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir lítið hafa áunnist í leikskólamálum undanfarin ár og virðist aðeins fara versnandi, sem sé ólíðandi.

„Staðan var auðvitað mjög slæm síðastliðið haust og þá var ákveðið að fara í ákveðinn aðgerðarpakka. Ég get ekki séð að það hafi verið unnið neitt sérstaklega með þann aðgerðarpakka eða að neinn sérstakur árangur hafi náðst. Þannig staðan er bara ekki góð og því miður fær maður það á tilfinninguna að það séu engar raunverulegar aðgerðir í gangi,“ segir Hildur.

Þau hafi lagt fram ýmsar tillögur að úrbótum, enda þarfir foreldra margbreytilegar. Þar má nefna efling dagforeldra kerfisins, heimagreiðslur til þeirra sem eru fastir á biðlistum eða vilja vera lengur heima, og aukinn stuðning við sjálfstætt starfandi skóla. Þá vill hún ræða möguleikann á því að stærri vinnustaðir opni daggæslu fyrir börn starfsmanna.

„Við komum með tillögur í þessa veru síðastliðið haust og þær voru samþykktar en við sjáum hins vegar ekki að neitt sé unnið úr þeim. Þetta er svolítið það sem að við skynjum í pólitíkinni í Reykjavík og í stjórnsýslunni, það eru fagurgalar og það eru falleg fyrirheit en svo sjáum við ekki vinnuna sem þarf að vinna á bak við og þess vegna erum við stödd í þessari stöðu aftur og aftur,“ segir Hildur.

Hún hefur kallað eftir því að leikskólamálin verði sett á dagskrá borgarráðs í fyrramálið og hefur stór hópur foreldra boðað mótmæli þar sem þau telja leikskólamálin í algjörum lamasessi. Hildur segir foreldra eðlilega ósátta vegna væntinga sem hafi ekki staðist. 

„Þetta er auðvitað bara þröng staða fyrir marga og mjög kvíðavaldandi, þannig við verðum að fara að geta gefið fólki skýr svör og gæta þess að væntingarnar sem við gefum fólki séu ekki falskar,“ segir Hildur. „Staðan er algjörlega óásættanleg eins og hún er núna og það vantar miklu meiri kraft í leikskólamálin í Reykjavík.“


Tengdar fréttir

Skiptar skoðanir á 200 þúsund króna styrk til foreldra

Borgarstjórn samþykkti síðastliðinn þriðjudag að vísa tillögum um svokallaðan foreldrastyrk til meðferðar borgarráðs. Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að greiða 200 þúsund krónur mánaðarlega til þeirra foreldra sem þurfa eða kjósa að vera með börnin sín heima að fæðingarorlofi loknu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×