„Við getum ekki látið draga okkur inn í þessa sjálfseyðingarhvöt ESB“ Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 25. mars 2023 23:07 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur miklar áhyggjur af nýju reglunum. Vísir/Vilhelm Sigmundur Davíð Gunnlaugsson alþingismaður segir nýjar reglur Evrópusambandsins um að sporna gegn mengun vegna flugsamgangna rústa samkeppnisstöðu Íslands. Hann segir svör ESB einkennast af óvirðingu. Ríkisstjórnin verði að standa á sínu.
Nýju reglur sambandsins taka gildi að óbreyttu næstu áramót. Íslendingar hafa árangurslaust reynt að fá undanþágu frá reglunum síðustu mánuði. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skrifaði Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, bréf síðasta sumar. Svar barst fljótlega en íslenska forsætisráðuneytið neitaði að afhenda bréfið á grundvelli upplýsingalaga. Það hefur nú loks fengist birt. Sigmundur Davíð segir að í svari Evrópusambandsins felist „fullkomið diss.“ Sambandið gefi í skyn að íslensk stjórnvöld séu svartsýn og hafi ekki fullan skilning á stöðunni. Allir þurfi að taka þátt og fylgja nýju reglunum. Hann ræddi málið við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær. „Þetta er gífurlegt áhyggjuefni því ef þetta verður innleitt hér, þá mun það rústa stöðu Íslands sem tengimiðstöðvar í Atlantshafinu. Og hvað þýðir það? Það verða miklu færri flugferðir til og frá landinu, þær verða miklu dýrari. Ferðaþjónustan kemst í algjört uppnám, útflutningur á til dæmis ferskum fiski kemst í uppnám. Þannig að þetta er risastórt mál.“ Árangurslausir fundir í tugatali Hann segir að ráðherrar hafi margoft fundað með fulltrúum Evrópusambandsins sem engan árangur hafi borið. Sambandið verði að átta sig á sérstöðu Íslands og ríkisstjórnin verði að setja púður í að gera Evrópusambandinu það ljóst. Ekki sé hægt að setja alla í sama mót, enda henti fyrirætlanir ekki aðstæðum landsins. „Þetta mun skaða okkur hlutfallslega miklu meira en nokkurn annan. Ekki bara út af þessu með tengimiðstöðina hérna heldur líka vegna þess hvað flug er stór þáttur í okkar efnahagslífi, hvað ferðaþjónustan er stór þáttur í okkar útflutningstekjum. Við getum ekki farið til næsta lands í járnbrautarlest eða í strætó, við þurfum að fara með flugvél. Þannig að þetta leggst mjög þungt á Ísland saman borið við aðra og rústar samkeppnisstöðu okkar.“ Hann segir að ríkisstjórnin verði einfaldlega að standa á sínu. „Þau þurfa að segja: Þetta hentar ekki okkar aðstæðum, þetta mun rústa okkar stöðu, það er okkar mat og okkar útreikningar. Við munum ekki samþykkja þetta óbreytt. Flugið er það mikilvægt fyrir okkur sem þjóð á svo margan hátt, að við getum ekki látið draga okkur inn í þessa sjálfseyðingarhvöt ESB.“ Hér er aðeins stiklað á stóru en hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér að neðan.
Fréttir af flugi Evrópusambandið Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Reykjavík síðdegis Miðflokkurinn Tengdar fréttir Bréfið fæst ekki heldur afhent frá Evrópu Svarbréf Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við erindi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra frá því í júní í fyrra, fæst ekki afhent frá framkvæmdastjórninni, þar sem svo er metið að ekki sé um opinber gögn að ræða. 2. mars 2023 11:51 Von der Leyen svaraði erindi Katrínar en svörin fást ekki afhent Katrínu Jakobsdóttur barst svarbréf frá Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við erindi forsætisráðherra frá því í júní í fyrra er varðaði kostnað við losun frá millilandaflugi. 23. febrúar 2023 09:30 Fyrirætlanir ESB setji stöðu Íslands í hættu Fái Ísland ekki undanþágu frá fyrirhuguðum hertum aðgerðum Evrópusambandsins til að sporna við mengun vegna flugsamgangna gæti landið misst stöðu sína sem tengipunktur milli Evrópu og Ameríku, með slæmum afleiðingum fyrir hagkerfið. Þetta segir forstjóri Icelandair. 22. febrúar 2023 20:51 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira
Bréfið fæst ekki heldur afhent frá Evrópu Svarbréf Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við erindi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra frá því í júní í fyrra, fæst ekki afhent frá framkvæmdastjórninni, þar sem svo er metið að ekki sé um opinber gögn að ræða. 2. mars 2023 11:51
Von der Leyen svaraði erindi Katrínar en svörin fást ekki afhent Katrínu Jakobsdóttur barst svarbréf frá Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við erindi forsætisráðherra frá því í júní í fyrra er varðaði kostnað við losun frá millilandaflugi. 23. febrúar 2023 09:30
Fyrirætlanir ESB setji stöðu Íslands í hættu Fái Ísland ekki undanþágu frá fyrirhuguðum hertum aðgerðum Evrópusambandsins til að sporna við mengun vegna flugsamgangna gæti landið misst stöðu sína sem tengipunktur milli Evrópu og Ameríku, með slæmum afleiðingum fyrir hagkerfið. Þetta segir forstjóri Icelandair. 22. febrúar 2023 20:51