„Allt í einu er maður farinn að heyra að hann geti verið næsti Pele“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2024 13:03 Endrick fagnar sigurmarki sínu á Wembley leikvanginum en þetta var hans fyrsta landsliðsmark. AP/Alastair Grant Spænski landsliðsþjálfarinn Luis de la Fuente hefur fengið góða reynslu á síðustu mánuðum að vera með kornunga leikmenn í sínu liði og hann varar Brasilíumenn við því að setja ekki of mikla pressu á hinn sautján ára gamla Endrick.
Endrick skoraði sitt fyrsta landsliðsmark þegar hann tryggði Brasilíu 1-0 sigur á Englandi á Wembley á dögunum en hann var þá sá yngsti til að skora fyrir brasilíska landsliðið síðan að Ronaldo skoraði á móti Íslandi árið 1994. Umræða um Endrick fór á fulla ferð í heimalandinu eftir leikinn og væntingarnar eru gríðarlegar. Endrick er líka á leiðinni til Real Madrid í nánustu framtíð. Spánn og Brasilía mætast í vináttulandsleik í kvöld. Spain boss: Pressure on Endrick, 17, is 'too much'Spain coach Luis de la Fuente has said he hopes the weight of expectations being carried by Brazil prodigy Endrick do not become too much for the Real Madrid-bound player.https://t.co/KPAl1VHyvb— ESPN Soccer (@ESPNsoccer) March 25, 2024 „Hann er bara sautján ára leikmaður. Hann er mjög góður fótboltamaður og við erum líka með mjög góða fótboltamenn á hans aldri í okkar landsliði,“ sagði Luis de la Fuente. Í spænska landsliðinu eru Barcelona strákarnir Lamine Yamal (16 ára) og Pau Cubarsí (17 ára). „Í sambandi við þessa ungu leikmenn og út frá minni reynslu þá verður að gefa þeim tíma og fara varlega með þá,“ sagði De la Fuente. „Allt i einu er maður farinn að heyra að hann [Endrick] geti verið næsti Pele. Guð minn góður,“ sagði De la Fuente. „Það er alltof mikil pressa á stráknum. Slíkt býr oft til mikið aukastress og það eru settar kröfur á þessa stráka sem þeir hafa ekki aldur eða þroska til að ráða við,“ sagði De la Fuente. „Með þessu er verið að gera þeim mikinn óleik. Við verðum að leyfa þeim að þróa sinn leik á æfingasvæðinu og það kemur að þeim tíma þegar við getum sett á þá alvöru kröfur. Þeir ráða engan veginn við svona pressu á þessum aldri,“ sagði De la Fuente. Así ve Luis de la Fuente a Endrick pic.twitter.com/ZAwoKrJpLQ— MARCA (@marca) March 25, 2024
Brasilía HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu Golf Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Körfubolti „Þetta eru tvö dúndurlið“ Körfubolti „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Körfubolti Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Fótbolti Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Fótbolti Fleiri fréttir Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sjá meira