Gefa út handtökuskipun á hendur Pútín Samúel Karl Ólason skrifar 17. mars 2023 15:23 Vladimír Pútín, forseti Rússlands. AP/Pavel Bednyakov Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafa gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Handtökuskipunin er gefin út vegna fjölda úkraínska barna sem rænt hefur verið til Rússlands.
Handtökuskipun hefur einnig verið gefin á hendur Maríu Alekseyevna Lvova-Belova, nokkurskonar umboðskonu barna í Rússlandi. Sjá einnig: Rússnesk stjórnvöld nema úkraínsk börn á brott og flytja þau til Rússlands Saksóknarar og rannsakendur ICC hafa verið með ódæði rússneskra hermanna í Úkraínu til skoðunar um nokkuð skeið. Fjölmörgum úkraínskum börnum hefur verið rænt og þau ættleidd til rússneskra fjölskyldna eða komið fyrir á rússneskum stofnunum. Sjá einnig: Að minnsta kosti 6.000 börn send í „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi Rússar hafa ekki reynt að fela þessi mannrán heldur halda þeir því þess í stað fram að um björgunarstarf sé að ræða. Hvort sem börn eru munaðarlaus eða ekki, þá er það að ala börn upp í annarri menningu mögulegt ummerki þjóðernishreinsunar. Þess að verið sé að reyna að þurrka út menningu og einkenni óvinaþjóðar. Pútín hefur opinberlega lýst því yfir að hann styðji þessar ættleiðingar. Hér má sjá yfirlýsingu frá Piotr Hofmański, forseta ICC, um handtökuskipunina. Hann segir dómarana vera að fylgja skyldum sínum samkvæmt lögum. Framhaldið velti á alþjóðasamfélaginu #ICC President Judge Piotr Hofma ski on recent arrest warrants against Vladimir Vladimirovich Putin and Maria Alekseyevna Lvova-Belova in the context of the situation in #UkraineMore info: https://t.co/5OMC7Xuuy5 pic.twitter.com/45bT4mHqIs— Int'l Criminal Court (@IntlCrimCourt) March 17, 2023 Í yfirlýsingu frá ICC segir að grundvöllur sé fyrir því að Pútín beri persónulega ábyrgð á því að börn hafi verið flutt frá Úkraínu og til Rússlands og því að stöðva ekki undirmenn sína og aðra í að fremja þessa glæpi. Lvova-Belova er einnig sögð bera ábyrgð á flutningunum. New York Times sagði nýverið frá því að saksóknarar ICC væru einnig að skoða markvissar árásir Rússa á borgaralega innviði í Úkraínu. Sjá einnig: Sagðir ætla að höfða mál gegn Rússum fyrir stríðsglæpi Rússar hafa gert fjölmargar umfangsmiklar árásir á innviði og voru þær sérstaklega margar í haust. Þá fóru ráðamenn í Rússlandi ekki leynt með að árásunum var ætlað að valda almenningi skaða og leiða til fólksflótta frá Úkraínu. Framsal ólíklegt Verulega ólíklegt er að réttarhöld muni fara fram. Sérfræðingar segja litlar sem engar líkur á því að yfirvöld í Rússlandi muni nokkurn tímann framselja rússneska embættismenn eða hermenn. Óhætt er að segja að Pútín muni ekki framselja sjálfan sig. María Sakaróva, talskona Utanríkisráðuneytis Rússlands, segir handtökuskipun dómstólsins marklausa. Hún hafi enga þýðingu í Rússlandi, en Rússar hafa ekki skrifað undir Rómarsamþykktina. Handtökuskipunin felur þó í sér að stigi Pútín fæti í eitt af þeim 123 ríkjum sem hafa skrifað undir Rómarsamþykktina um stofnun Alþjóðlega sakamáladómstólsins, eigi lögreglan í þeim ríkjum að handtaka Pútín. Ísland er eitt af þessum ríkjum. Ráðamenn í Rússlandi þvertaka fyrir að hermenn þeirra hafi framið stríðsglæpi í Úkraínu og alþjóðlegur rannsakendur hafa þó fundið mikið magn sönnunargagna sem benda til þess að stríðsglæpir hafi verið framdir og þá sérstaklega á fyrri hluta innrásarinnar.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Úkraína Hernaður Vladimír Pútín Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Fleiri fréttir Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Sjá meira