Svör von der Leyen gefa til kynna að misskilningur hafi verið á ferð Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. mars 2023 10:57 Katrín sendi erindi sitt í júní og von der Leyen svaraði í ágúst. Getty/Andreas Gora Svör Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við erindi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um áhyggjur Íslendinga vegna Fit for 55-áætlunar Evrópusambandsins virðast benda til þess að stjórnvöld hafi misskilið fyrirhugaðar breytingar. Vísir greindi frá erindi Katrínar í febrúar en þá fengust svör von der Leyen ekki afhent. Forsætisráðuneytið sendi þau hins vegar frá sér í gær, að fengnu samþykki frá skrifstofu forsetans. Von der Leyen segir í bréfi sínu til Katrínar, sem dagsett er 23. ágúst 2022, að starfsmenn framkvæmdastjórnarinnar hafi farið yfir greiningu íslenskra stjórnvalda og rætt við fulltrúa Íslands í tengslum við málið. Nokkrar af þeim ályktunum sem gengið sé út frá í erindi Katrínar endurspegli ekki löggjöf Evrópusambandsins og niðurstöður séu ekki í takt við greiningar framkvæmdastjórnarinnar eða Eurocontrol, sem sé sjálfstæður aðili. Tæknilegar viðræður milli fulltrúa framkvæmdastjórnarinnar og Íslands séu yfirstandandi. Von der Leyen segir menn þó hafa skilning á stöðu Íslands, sérstaklega landfræðilega. Fyrirhugaðar breytingar séu hins vegar takmarkaðar en snúi aðallega að því að taka fyrir ókeypis losunarheimildir. Í bréfinu segir að á tvíhliða fundum hafi starfsmenn framkvæmdastjórnarinnar gengist við því að Fit for 55-áætlunin feli í sér aðgerðir sem gætu haft samlegðaráhrif á flugiðnaðinn. Því séu allar tillögur um aðgerðir til að draga úr kolefnislosun í flugiðnaðinum vel þegnar. Hvað er Fit for 55? Fit for 55 miðar að því að takmarka losun gróðurhúsaloftegunda innan Evrópusambandsins um að minnsta kosti 55 prósent fyrir árið 2030. Tillögurnar sem lagðar hafa verið fram fela meðal annars í sér kröfur til flugfélaga um notkun vistvænni orkugjafa og flugvalla um uppbyggingu innviða til að styðja við markmiðin. Hvað varðar kolefnisleka sé mikilvægt að hafa í huga að lykilþáttur í ETS-losunarheimildakerfinu sé jafnræði milli flugfélaga á sömu flugleiðum. Þannig sé ekki hægt að flytja losun frá einu svæði yfir á annað og allir sitji við sama borð. Þetta sé kerfi sem flugfélögin hafi búið við í áratug og aðeins séu lagðar til smávægilegar breytingar. Forsetinn leggur einnig áherslu á að bæði framkvæmdastjórnin og Evrópuþingið sjái fyrir sér styrkjakerfi í tengslum við innleiðingu endurnýjanlegra orkugjafa í flugiðnaðinum, sem ættu að koma til móts við áhyggjur Íslendinga að einhverju leyti. Þá séu Íslendingar í sterkri stöðu til að verða mikilvægur framleiðandi umhverfisvænna flugeldsneyta. Bréf Katrínar til von der Leyen Í bréfi forsætisráðherra til von der Leyen í júní í fyrra lýsti ráðherra yfir þungum áhyggjum af af fyrirhuguðum takmörkunum á fríum losunarheimildum og tillögum sem miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneyta og auka hlut umhverfisvænna orkugjafa. Breytingarnar væru afar íþyngjandi fyrir Ísland og drægi bæði úr samkeppnishæfni íslenskra flugfélaga og Keflavíkurflugvallar. Málið væri sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að tillögurnar muni leiða til verðhækkana í flugsamgöngum, sem séu eini samskiptamátin sem Íslendingum standi til boða þegar komi að ferðalögum út fyrir landsteinana. Þá sagðist forsætisráðherra hafa áhyggjur af „kolefnisleka“ vegna aukinna viðskipta við ódýrari flugfélög sem féllu utan reglanna. Lagði hún meðal annars til að sá kostnaðarauki sem tillögurnar fælu í sér féllu niður eftir 50 kílómetra flugferð til eða frá „fjarlægu eyríki“. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu er málið nú á borði utanríkisráðuneytisins. Tengd skjöl scan_r01lira05092022PDF1.1MBSækja skjal Evrópusambandið Umhverfismál Fréttir af flugi Icelandair Play Loftslagsmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Vísir greindi frá erindi Katrínar í febrúar en þá fengust svör von der Leyen ekki afhent. Forsætisráðuneytið sendi þau hins vegar frá sér í gær, að fengnu samþykki frá skrifstofu forsetans. Von der Leyen segir í bréfi sínu til Katrínar, sem dagsett er 23. ágúst 2022, að starfsmenn framkvæmdastjórnarinnar hafi farið yfir greiningu íslenskra stjórnvalda og rætt við fulltrúa Íslands í tengslum við málið. Nokkrar af þeim ályktunum sem gengið sé út frá í erindi Katrínar endurspegli ekki löggjöf Evrópusambandsins og niðurstöður séu ekki í takt við greiningar framkvæmdastjórnarinnar eða Eurocontrol, sem sé sjálfstæður aðili. Tæknilegar viðræður milli fulltrúa framkvæmdastjórnarinnar og Íslands séu yfirstandandi. Von der Leyen segir menn þó hafa skilning á stöðu Íslands, sérstaklega landfræðilega. Fyrirhugaðar breytingar séu hins vegar takmarkaðar en snúi aðallega að því að taka fyrir ókeypis losunarheimildir. Í bréfinu segir að á tvíhliða fundum hafi starfsmenn framkvæmdastjórnarinnar gengist við því að Fit for 55-áætlunin feli í sér aðgerðir sem gætu haft samlegðaráhrif á flugiðnaðinn. Því séu allar tillögur um aðgerðir til að draga úr kolefnislosun í flugiðnaðinum vel þegnar. Hvað er Fit for 55? Fit for 55 miðar að því að takmarka losun gróðurhúsaloftegunda innan Evrópusambandsins um að minnsta kosti 55 prósent fyrir árið 2030. Tillögurnar sem lagðar hafa verið fram fela meðal annars í sér kröfur til flugfélaga um notkun vistvænni orkugjafa og flugvalla um uppbyggingu innviða til að styðja við markmiðin. Hvað varðar kolefnisleka sé mikilvægt að hafa í huga að lykilþáttur í ETS-losunarheimildakerfinu sé jafnræði milli flugfélaga á sömu flugleiðum. Þannig sé ekki hægt að flytja losun frá einu svæði yfir á annað og allir sitji við sama borð. Þetta sé kerfi sem flugfélögin hafi búið við í áratug og aðeins séu lagðar til smávægilegar breytingar. Forsetinn leggur einnig áherslu á að bæði framkvæmdastjórnin og Evrópuþingið sjái fyrir sér styrkjakerfi í tengslum við innleiðingu endurnýjanlegra orkugjafa í flugiðnaðinum, sem ættu að koma til móts við áhyggjur Íslendinga að einhverju leyti. Þá séu Íslendingar í sterkri stöðu til að verða mikilvægur framleiðandi umhverfisvænna flugeldsneyta. Bréf Katrínar til von der Leyen Í bréfi forsætisráðherra til von der Leyen í júní í fyrra lýsti ráðherra yfir þungum áhyggjum af af fyrirhuguðum takmörkunum á fríum losunarheimildum og tillögum sem miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneyta og auka hlut umhverfisvænna orkugjafa. Breytingarnar væru afar íþyngjandi fyrir Ísland og drægi bæði úr samkeppnishæfni íslenskra flugfélaga og Keflavíkurflugvallar. Málið væri sérstaklega alvarlegt í ljósi þess að tillögurnar muni leiða til verðhækkana í flugsamgöngum, sem séu eini samskiptamátin sem Íslendingum standi til boða þegar komi að ferðalögum út fyrir landsteinana. Þá sagðist forsætisráðherra hafa áhyggjur af „kolefnisleka“ vegna aukinna viðskipta við ódýrari flugfélög sem féllu utan reglanna. Lagði hún meðal annars til að sá kostnaðarauki sem tillögurnar fælu í sér féllu niður eftir 50 kílómetra flugferð til eða frá „fjarlægu eyríki“. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu er málið nú á borði utanríkisráðuneytisins. Tengd skjöl scan_r01lira05092022PDF1.1MBSækja skjal
Hvað er Fit for 55? Fit for 55 miðar að því að takmarka losun gróðurhúsaloftegunda innan Evrópusambandsins um að minnsta kosti 55 prósent fyrir árið 2030. Tillögurnar sem lagðar hafa verið fram fela meðal annars í sér kröfur til flugfélaga um notkun vistvænni orkugjafa og flugvalla um uppbyggingu innviða til að styðja við markmiðin.
Evrópusambandið Umhverfismál Fréttir af flugi Icelandair Play Loftslagsmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira