Tottenham skellti sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með því að leggja Manchester City að velli í stórleik hegarinnar, 2:0. Fyrirliðinn Harry Kane segir Lundúnaliðið eiga möguleika á góðu tímabili.
„Þetta er opnari deild en oft áður, ef við náum að vinna nokkra í röð þá er aldrei að vita,“ sagði Kane í viðtali við Sky Sports, spurður um titilmöguleika liðsins.
„Við njótum þess í kvöld að hafa unnið svona leik en annars er langt í land.“