Vonar að konan taki því fagnandi að sjá meira af honum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. maí 2022 10:41 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir kveður embættið. Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að bæði aldurinn og staðan í kórónuveirufaraldrinum séu ástæður þess að hann ætli að hætta störfum í haust. Ákvörðunin sé algjörlega tekin á hans forsendum. Embætti landlæknis hefur auglýst starf sóttvarnalæknis til umsóknar. Ástæðan er sú að Þórólfur, fastagestur á sjónvarpsskjám landsmanna undanfarin tvö ár, hefur ákveðið að stíga af sviðinu. Þórólfur sagði í viðtali við Véstein Örn Pétursson fréttamann, sem sýnt var beint á Vísi á tólfta tímanum, að Covid-19 faraldurinn væri þrátt fyrir allt ekki búinn. Nú væri góður tími hér á landi til að fara yfir farinn veg, huga að sóttvörnum að nýju og gera síðustu tvö ár upp. „Þetta er góður tími fyrir mig og sóttvarnirnar að stokka upp,“ sagði Þórólfur. Hann segir gott að fá nýjan mann í brúna. Margt þurfi að gera upp. Búa til nýja viðbragðsáætlun enda muni koma annar faraldur og þá þurfi að búa að reynslunni. Hann útilokar ekki að koma að þeirri vinnu en það sé þó óráðið. Fjölskyldan í forgang Óvíst er hvað taki við en hann ætli þó að setja fókusinn á sjálfan sig og fjölskylduna. Aðspurður segist hann vona að eiginkonan taki því fagnandi að hann sé að hætta og sjái meira af honum. Þórólfur lítur stoltur um farinn veg, þakklátur fyrir samvinnuna með öllum sem hönd hafi lagt á plóg hjá landlækni og almannavörnum. En því sé fjarri að kominn sé endapunktur í sóttvörnum. „Þetta er eilífðarverkefni.“ Þá segir hann starf sóttvarnalæknis afar skemmtilegt. Að vinna við það fag sem hann hafi lagt fyrir sig og með frábæru fólki. „Það eru forréttindi.“
Embætti landlæknis hefur auglýst starf sóttvarnalæknis til umsóknar. Ástæðan er sú að Þórólfur, fastagestur á sjónvarpsskjám landsmanna undanfarin tvö ár, hefur ákveðið að stíga af sviðinu. Þórólfur sagði í viðtali við Véstein Örn Pétursson fréttamann, sem sýnt var beint á Vísi á tólfta tímanum, að Covid-19 faraldurinn væri þrátt fyrir allt ekki búinn. Nú væri góður tími hér á landi til að fara yfir farinn veg, huga að sóttvörnum að nýju og gera síðustu tvö ár upp. „Þetta er góður tími fyrir mig og sóttvarnirnar að stokka upp,“ sagði Þórólfur. Hann segir gott að fá nýjan mann í brúna. Margt þurfi að gera upp. Búa til nýja viðbragðsáætlun enda muni koma annar faraldur og þá þurfi að búa að reynslunni. Hann útilokar ekki að koma að þeirri vinnu en það sé þó óráðið. Fjölskyldan í forgang Óvíst er hvað taki við en hann ætli þó að setja fókusinn á sjálfan sig og fjölskylduna. Aðspurður segist hann vona að eiginkonan taki því fagnandi að hann sé að hætta og sjái meira af honum. Þórólfur lítur stoltur um farinn veg, þakklátur fyrir samvinnuna með öllum sem hönd hafi lagt á plóg hjá landlækni og almannavörnum. En því sé fjarri að kominn sé endapunktur í sóttvörnum. „Þetta er eilífðarverkefni.“ Þá segir hann starf sóttvarnalæknis afar skemmtilegt. Að vinna við það fag sem hann hafi lagt fyrir sig og með frábæru fólki. „Það eru forréttindi.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tímamót Tengdar fréttir Þórólfur Guðnason segir upp störfum Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt upp störfum frá og með 1. september næstkomandi. Hann segir ástæður uppsagnarinnar bæði persónulegar og faglegar. 12. maí 2022 09:52 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Fleiri fréttir Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkisstjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Sjá meira
Þórólfur Guðnason segir upp störfum Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt upp störfum frá og með 1. september næstkomandi. Hann segir ástæður uppsagnarinnar bæði persónulegar og faglegar. 12. maí 2022 09:52