Stærðarmunur á forsetahjónum vekur furðu Kjartan Kjartansson skrifar 4. maí 2021 15:01 Myndin sem vakti kátínu og furðu netverja, frá vinstri: Jill Biden, Jimmy Carter, Rosalynn Carter og Joe Biden. Hvíta húsið/Carter-miðstöðin Mynd af forsetahjónum Bandaríkjanna með Jimmy Carter, fyrrverandi forseta, og Rosalynn eiginkonu hans, hefur vakið mikla furðu og kátínu á samfélagsmiðlum. Á henni virðast Biden-hjónin eins og risar við hlið Carter-hjónanna en allt á það sér þó einfaldari skýringar.
Joe og Jill Biden, núverandi forsetahjón Bandaríkjanna, heimsóttu Carter-hjónin á heimili þeirra í Georgíu fyrir helgi. Eftir heimsóknina birtu Hvíta húsið og Carter-miðstöðin mynd sem var tekin af því tilefni þar sem Biden-hjónin krjúpa við hlið Carter-hjónanna sem sitja í hægindastólum. Á henni virðast Biden-hjónin gnæfa yfir nær dvergvöxnum Carter-hjónunum. Netverjar og aðrir gárungar furðuðu sig fljótt á stærðarmuninum. Washington Post segir að í morgun hafi fleiri en þrettán þúsund manns deilt myndinni á samfélagsmiðlinum Twitter með spurningum um hvort að Biden-hjónin séu risar, Carter-hjónin agnarsmá og hvort að myndin hafi verið tekin í leikmyndinni fyrir kvikmyndirnar um Hobbitana, ættbálk smávaxins mannfólks í söguheimi Hringadróttinssögu eftir J.R.R. Tolkien. Joe and Jill Biden this afternoon pic.twitter.com/tPngeKaB7V— Mike Scollins (@mikescollins) May 4, 2021 Bandaríska blaðið bendir þó á að svarið sé einfaldara en svo. Hæðarmunur er á Biden-hjónunum og Carter-hjónunum en þau fyrrnefndu eru þó nokkuð hærri. Þá eru Carter-hjónin eldri en núverandi forsetahjónin. Jimmy Carter er 96 ára og Rosalynn er 93 ára. Þekkt er að fólk skreppur saman með aldrinum. Fleira spilar þó inn í sem tengist myndatökunni sjálfri. Bæði virðist myndin hafa verið tekin með víðri linsu og miklu blossaljósi. Þrátt fyrir að Biden forseti krjúpi töluvert fyrir framan Rosalynn Carter dragi blossaljósið úr skuggum sem leika lykilhlutverk í dýptarskynjum á ljósmyndum. Þannig virðast þau hlið við hlið á myndinni. Víð linsan, sem líklega var notuð til að ná hjónunum saman í þröngu rými á einni mynd, ýkir þau áhrif. There. I fixed it. pic.twitter.com/dmjLiX3oXk— Deonardo La Vinci (@DeonardoLeVinci) May 4, 2021
Bandaríkin Jimmy Carter Joe Biden Grín og gaman Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Halla þótti standa sig best Innlent Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Innlent Stefni í endurtekningu á síðasta vori Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Fleiri fréttir Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Sjá meira