„Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Jakob Bjarnar skrifar 26. apríl 2024 10:31 Einn þekktasti kosningasmali landsins er genginn til liðs við Katrínu Jakobsdóttur. Friðjón er einnig borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og er það skoðun margra að þetta staðfesti illan grun um allsherjar samkrull milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks. vísir/frosti/vilhelm Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna, hefur gengið til liðs við kosningateymi Katrínar Jakobsdóttur í komandi forsetakosningum. Sem þykja tíðindi á ýmsum bæjum.
Friðjón tilkynnti um þetta á Facebook-síðu sinni í gær og hefur þetta valdið verulegu uppnámi á sumum bæjum og er haft til marks um svik Katrínar og Vinstri grænna við málstaðinn. Og staðfesti svo ekki verður um villst tengsl Katrínar við Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfstæðismenn sumir hverjir ekki kátir heldur Friðjón segir, í samtali við Vísi, að hann gefi ekki mikið fyrir þau sjónarmið. „Ég hef alltaf unnið fyrir hófsama vinstri menn í þessum kosningum. Ég tel Guðna ekki til hægri manna. Fullt af Sjálfstæðismönnum sem studdu hans en einkum voru þetta nú gamlir vinir úr Garðabæ og ættingjar.“ Friðjón segist hafa þekkt Katrínu lengi og treysti henni einfaldlega fyrir þessu. „Ég hef líka fengið gagnrýni úr röðum Sjálfstæðismanna fyrir að standa í þessu. Þetta er eins og það er. „Damned if you do, damned if you don't “. En þetta er ekki ákvörðun sem tekin var í Valhöll, því get ég lofað þér.“ Friðjón telst sérlega eftirsóttur í það að tilheyra kosningamaskínu, hann hefur mikla reynslu í þeim efnum og það sem meira er – brennandi áhuga á kosningum. „Ég hef átt fundi með ýmsum sem hafa viljað spyrja mig um framkvæmd forsetakosninga og ég hef átt fundi með fólki sem hefur farið og farið ekki. Fólk veit að ég hef einhverja reynslu af þessu og er bóngóður. Ég hef gaman að því að tala um kosningar þannig að þetta er engin kvöð. Að bjóða mér í kaffi að tala um það sem mér finnst skemmtilegast að tala um,“ segir Friðjón og hlær. Er sjálfboðaliði eins og flestir í teyminu Að sögn Friðjóns eru allra flokka kvikindi sem tilheyra kosningateymi Katrínar. „Ég var beðinn um að koma þarna inn og mér er það ljúft og skylt, því ég hef þekkt hana lengi.“ En af hverju styðja Sjálfstæðismenn Katrínu í þessum slag? „Þeir íhaldsmenn sem styðja hana gera það út af tvennu að ég tel; Hún talar fyrir íslenskri menningu og íslenskri tungu og þeir hafa það á tilfinningunni að hún fari ekki á taugum í erfiðum aðstæðum. Treysta henni betur en öðrum til að standa í lappirnar þegar Twitter fer af stað.“ Friðjón segist muna eftir könnun sem fór fram fyrir nokkrum árum þar sem á daginn kom að tvö prósent þjóðarinnar fóru inn á Twitter. Engu að síður voru áhrif þess sem þar var sagt veruleg. En þetta segði til um hvers konar míkrókosmos Twitter eða X er, jafnvel eftir að Elon Musk keypti þetta. Friðjón segist að endingu vera í sjálfboðavinnu fyrir Katrínu, eins og flestir sem að þessu koma. „Þetta er sjálfboðaliðastarf, mánaðarsprettur, kvöld og helgarvinna og ég hlýt að geta haldið tveimur boltum á lofti,“ segir Friðjón. Hann er mættur í slaginn.
Forsetakosningar 2024 Auglýsinga- og markaðsmál Vinstri græn Sjálfstæðisflokkurinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Erlent Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Erlent Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi Innlent Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Erlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Innlent Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Innlent Fleiri fréttir Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Sjá meira