Körfubolti

NBA dagsins: Segir að hin liðin í deildinni séu skíthrædd við Stephen Curry

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stephen Curry var frábær í sigri Golden State Warriors á  New Orleans Pelicans í nótt. 41 stig, átta þristar og átta stoðsendingar.
Stephen Curry var frábær í sigri Golden State Warriors á  New Orleans Pelicans í nótt. 41 stig, átta þristar og átta stoðsendingar. AP/Gerald Herbert

Stephen Curry hefur boðið upp á skotsýningu á endurkomutímabilinu sínu eftir að hann missti af nær öllu síðasta tímabili vegna meiðsla.

Curry skoraði 41 stig í nótt þegar Golden State Warriors vann mikilvægan 123-104 sigur á New Orleans Pelicans en liðin eru að keppa á svipuðum slóðum um síðustu sætin inn í úrslitakeppnina.

Þetta var níundi leikur Curry á leiktíðinni þar sem hann skorað fjörutíu stig eða meira þar af í sjötta sinn í síðustu fimmtán leikjum. Stórskyttan skoraði átta þrista í leiknum en hann átti einnig átta stoðsendingar á félaga sína.

Draymond Green, liðsfélagi Stephen Curry, bauð sjálfur upp á þrennu í leiknum en talaði vel um skotbakvörðinn sinn eftir leik.

„Í hvert skipti sem þú ferð inn á völlinn með Steph Curry þá hefur þú ákveðið forskot,“ sagði Draymond Green eftir leikinn.

„Hin liðin eru skíthrædd við hann og þá skiptir ekki máli hvar hann er á vellinum eða hvert hann fer. Maður sem þannig aðdráttarafl færir liði sínu mikinn þunga,“ sagði Green.

„Ég vildi ekki vilja mæta liði með Steph Curry innanborðs. Við vitum öll hvað hann getur gert. Gæinn getur tekið yfir leik og gert öllum liðum í NBA deildinni erfitt fyrir,“ sagði Draymond Green sem var með 15 stoðsendingar, 13 fráköst og 10 stig í nótt.

Curry, sem er stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar á tímabilinu, var með 37,3 stig að meðaltali í apríl þar sem hann setti nýtt met með því að skora 96 þriggja stiga körfur. Hann hefur síðan skorað 71 stig í fyrstu tveimur leikjum sínum í maí.

Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá þessum sigurleik Golden State Warriors en eins má sjá þegar Los Angeles Lakers vann Denver Nuggets, þegar Russel Westbrook bauð upp á tröllaþrennu í sigri Washington Wizards á Indiana Pavcers (14 stig, 21 frákast og 24 stoðsendingar) sem og reynsluboltann Derrick Rose fara á kostum í tólfta sigri New York Knicks í síðustu þrettán leikjum.

Þá fylgja einnig flottustu tilþrif næturinnar úr allri NBA-deildinni.

Klippa: NBA dagsins (frá 3. maí 2021)
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×