Nagelsmann opinn fyrir viðræðum við Tottenham Smári Jökull Jónsson skrifar 25. mars 2023 09:30 Óvissa er um framtíð Antonio Conte hjá Tottenham og Lundúnaliðið gæti litið til Julian Nagelsmann sem varð atvinnulaus í vikunni. Vísir/Getty Julian Nagelsmann er opinn fyrir viðræðum við enska úrvalsdeildarliðið Tottenham en Þjóðverjanum var sagt upp hjá Bayern Munchen í vikunni. Framtíð Antoino Conte þjálfara Tottenham er í lausu lofti eftir slakt gengi að undanförnu.
Julian Nagelsmann var nokkuð óvænt sagt upp störfum hjá Bayern Munchen í vikunni og landi hans Thomas Tuchel ráðinn í staðinn. Bayern er í öðru sæti þýsku deildarinnar og komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar en það var ekki nóg fyrir forráðamenn þýska stórliðsins sem vildu ná í Tuchel áður en önnur lið færu að ræða við hann. Nagelsmann verður þó líklega ekki lengi atvinnulaus. Hann er nú orðaður við knattspyrnustjórastöðuna hjá Tottenham Hotspurs en Antonio Conte, knattspyrnustjóri Lundúnaliðsins, er valtur í sessi. Í viðtali eftir jafntefli Tottenham gegn Southampton um síðstu helgi var engu líkara en að Conte væri að biðja um að vera rekinn en þar fór hann hörðum orðum um liðið og forráðamenn þess. Í frétt Skysports kemur fram að Nagelsmann sé opinn fyrir viðræðum við Tottenham Hotspurs en gæti þó viljað taka sér stutta pásu áður en hann hoppar á næsta starf. Forráðamenn Spurs eru sömuleiðis áhugasamir um að fá Nagelsmann í stjórastöðuna en Nagelsmann vann þýsku úrvalsdeildina með Bayern á síðustu leiktíð og gerði þar áður góða hluti með lið RB Leipzig. Nagelsmann var á radarnum hjá Tottenham þegar liðið sagði upp Mauricio Pochettiono árið 2019 og reyndu sömuleiðis við hann þegar Jose Mourinho var sagt upp árið 2021. Í viðtali árið 2019 viðurkenndi Nagelsmann að hann fylgdist með leikjum Tottenham „því Mauricio Pochettiono væri þar og hann væri góður þjálfari. Hann er frábær þjálfari og liðið hans var skemmtilegt áhorfs.“ Þá sagði Nagelsmann sömuleiðis hafa fylgst með blaðamannafundum Jose Mourinho hjá félaginu á sínum tíma. Nokkur nöfn hafa verið orðuð við Tottenham á síðustu vikum og getgátur um brotthvarf Conte fóru enn frekar á flug eftir eldræðu hans um síðustu helgi. Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Brighton, Sergio Conceicao hjá Porto og Thomas Frank stjóri Brentford eru meðal þeirra sem orðaðir hafa verið við Tottenham en samningur Conte við félagið rennur út í sumar.
Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn UEFA setur pressu á City Football Group Fótbolti Fleiri fréttir Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Sjá meira