Starfsmenn settir í að tryggja tvo metra í langri röð fyrir utan Partýbúðina Sylvía Hall skrifar 29. október 2020 18:34 Löng röð myndaðist fyrir utan Partýbúðina síðdegis í dag. Vísir/Þórdís
Tveir starfsmenn voru settir í það að viðhalda tveggja metra fjarlægð milli fólks þegar löng röð myndaðist fyrir utan Partýbúðina síðdegis í dag. Verslunarstjóri búðarinnar segir ljóst að áhugi landsmanna á hrekkjavökunni sé mikill þetta árið. „Við áttuðum okkur ekki alveg á því hversu löng röðin væri fyrir utan, við erum mjög dugleg hérna inni. Það eru komnir tveir í að halda tveggja metra reglunni úti líka,“ segir Valgerður María Gunnarsdóttir verslunarstjóri í samtali við Vísi. Gagnrýni hafði verið birt á samfélagsmiðlum vegna raðarinnar þar sem ljóst þótti að tveggja metra reglan var ekki virt. Strangar sóttvarnareglur hafa verið í gildi í búðinni undanfarnar vikur, líkt og í samfélaginu öllu, enda sífellt fleiri sem kjósa að halda upp á hrekkjavökuna. Þannig fær enginn að koma inn nema með grímu og öllum gert að spritta sig áður en gengið er inn að sögn Valgerðar. „Svo er bara labbað eftir línum. Þú getur ekkert farið um búðina eins og þú vilt, þú verður að elta þína línu. Við reynum að passa upp á allt hérna.“ Meiri fjölskylduhátíð í ár Valgerður ræddi áhuga landsmanna á hrekkjavökunni í Reykjavík síðdegis í dag þar sem hún sagði hátíðina fram að þessu hafa verið bæði fyrir börn og fullorðna. Í ár sé þetta meiri fjölskylduhátíð en áður. „Núna sýnist okkur að það verði einblínt á fjölskylduna. Það er verið að gera eitthvað fyrir krakkana heima. Fólk er að taka þessu mjög alvarlega,“ sagði Valgerður, en almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hvatti landsmenn í gær til þess að halda upp á hátíðina heima fyrir. Þannig eru það ekki einungis grasker sem virðast rjúka út úr verslunum um þessar mundir, heldur einnig óhugnanlegt skraut og fleira drungalegt í anda hrekkjavökunnar. Gluggaskraut er sérstaklega vinsælt að sögn Valgerðar, en það sé í takt við þróun síðustu ára. „Undanfarin ár hefur verið rosaleg aukning á milli ára.“
Hrekkjavaka Reykjavík síðdegis Reykjavík Verslun Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira