Lögreglan rannsakar mannslát í Þingholtunum

Lögreglumenn að störfum. Myndin er úr safni.
Lögreglumenn að störfum. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á sjöunda tímanum í morgun var lögreglan kölluð að húsi í Þingholtunum í Reykjavík. Þaðan hafði borist kvörtun um hávaða og háreysti frá íbúð í húsinu. Þegar lögregla kom á staðinn reyndust þrír menn vera í íbúðinni. Einn þeirra var meðvitundarlaus og með litlum lífsmörkum.

Sjúkrabíll var þegar í stað kallaður til. Lögregla hóf strax endurlífgun sem hélt áfram þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang. Stuttu seinna var maðurinn úrskurðaður látinn á bráðamóttöku Landspítalans, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 

Tveir menn voru handteknir á staðnum og fluttir í fangageymslu. Rannsókn málsins er í fullum gangi.

Lögreglan mun ekki tjá sig meira um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert