Klitschko reiður vegna Rússa á ÓL: Með gullmedalíu í að nauðga konum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2023 09:31 Wladimir Klitschko var ekkert að spara stóru orðin þegar hann talaði gegn inntöku Rússa á Ólympíuleikana í París á næsta ári. Getty/ Eóin Noonan Einn frægasti íþróttamaður í sögu Úkraínu sparaði ekki stóru orðin þegar hann gagnrýndi fréttirnar af því að Alþjóðaólympíunefndin, IOC, vilji finna leið fyrir Rússa og Hvít-Rússa til að taka þátt í Ólympíuleikunum í París á næsta ári.
Úkraínska hnefaleikagoðsögnin Wladimir Klitschko setti inn myndband á samfélagsmiðla þar sem hann lýsir yfir reiði sinni og hneykslun vegna þessara frétta. „Rússar eru Ólympíumeistarar í glæpum gegn almennum borgurum,“ sagði Wladimir Klitschko meðal annars í myndbandinu sem hann setti inn á Facebook en hann gekk líka enn lengra. Olympic gold medalist Wladimir Klitschko has joined Ukraine's fight against IOC plans to let some Russians compete at the 2024 Paris Summer Games. https://t.co/vpNox5iNDh— The Associated Press (@AP) January 31, 2023 Alþjóðaólympíunefndin vill að rússneskir og hvít-rússneskir íþróttamenn fái að keppa á leikunum en undir hlutlausum fána. Margir hafa lýst yfir óánægju sinni vegna þessa en fáir hafa þó gengið eins langt í gagnrýni sinni og Klitschko. Klitschko er fyrrverandi heimsmeistari í þungavigt hnefaleikanna. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, bauð Thomas Bach, forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar, að koma í heimsókn í bæinn Bachmut, þar sem miklir bardagar hafa staðið yfir í vetur. Klitschko beindi orðum sínum beint til Thomas Bach og það voru þung orð sem hann lét út úr sér. „Þú leggur til að leyfa Rússum og Hvít-Rússum að keppa á Ólympíuleikunum í París. Ég get sagt þér að Rússar eru Ólympíumeistarar í glæpum gegn almennum borgurum. Þeir eru með gullmedalíu í að ræna börnum og nauðga konum. Þú getur ekki sett Ólympíuhringina á þessa glæpi þeirra því um leið verður þú vitorðsmaður í þessu svívirðilega stríði,“ sagði Klitschko. Today russians have the gold medal in war crimes, deportation of children and rape of women. You can't put your @Olympics emblem on these crimes dear Thomas Bach. @iocmedia #RoadToParis2024 #StopTheWar pic.twitter.com/v9ohDb13xe— Klitschko (@Klitschko) January 30, 2023
Innrás Rússa í Úkraínu Ólympíuleikar 2024 í París Box Rússland Úkraína Mest lesið Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Handbolti Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Handbolti Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg Körfubolti Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Fleiri fréttir Lopetegui tekur við AC Milan „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ Kelce framlengir og verður launahæsti innherji sögunnar „Skákin er bara byrjuð“ Rúnar Páll: Við eigum þetta ekki skilið en svona er þetta „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg Guðmundur Baldvin: Þrjú stig í hús á erfiðum velli og það er bara frábært Lewandowski með þrennu er Barcelona kom til baka gegn Valencia „Það er mikill efniviður í Fram“ Albert skoraði þegar Genoa gulltryggði sætið í efstu deild Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Stefán Teitur skoraði í óvæntum sigri á Sverri Inga og félögum Fjölbrautaskóli Suðurlands sigurvegarar Framhaldsskólaleikanna Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Tók sinn tíma að jafna sig Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Fullvissuð um það að íþróttafólk utan skápsins sé öruggt í Sádi Arabíu „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Mikil virðing fyrir Orra: Hárið stundum flækt en alltaf bros á vör Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn