„Hann er framtíðin í golfinu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 19. júlí 2021 19:16 Collin Morikawa hefur farið frábærlega af stað á sínum atvinnumannaferli. Andrew Redington/Getty Images Bandaríski kylfingurinn Collin Morikawa fagnaði sigri á Opna breska meistaramótinu í golfi í frumraun sinni á mótinu um helgina. Þorsteinn Hallgrímsson, fyrrum Íslandsmeistari í golfi og golfsérfræðingur Stöðvar 2 Sport, segir að um verðandi stórstjörnu sé að ræða. „Hann er framtíðin í golfinu, hann er ungur strákur, 24 ára gamall. En þessi sigur kemur kannski ekkert endilega rosalega á óvart fyrir okkur sem erum að fylgjast mikið með golfinu, því að hann hefur verið mikið efni og er einstakur.“ segir Þorsteinn í viðtali við Stöð 2 Sport. Morikawa hefur farið aðra leið en margir af þeim bestu þar sem hann var skráður sem áhugamaður á meðan hann kláraði háskólanám. Tiger Woods, til að mynda, hætti í námi eftir tvö ár í háskóla til að einbeita sér að atvinnumannaferli. „Hann klárar Berkeley-háskóla, þar sem hann er frá 2015 til 2019, sigrar á mótum þar, á frábæran feril - klárar námið sem viðskiptafræðingur og er efsti maður á heimslista áhugamanna,“ segir Þorsteinn. Líkt og fram kom að ofan þá var Morikawa að taka þátt á Opna breska í fyrsta sinn um helgina, hann lauk keppni á 15 höggum undir pari, tveimur á undan landa sínum Jordan Spieth sem varð annar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann vinnur risamót á frumraun sinni en hann gerði slíkt hið sama á PGA-meistaramótinu á síðasta ári. „Hann er búinn að á 42 mótum sem atvinnumaður, þar sem hann hefur alltaf komist í gegnum niðurskurðinn, Tiger Woods á metið, með 45, hann gæti slegið það en þessi mót sem hann er búinn að vinna, þau eru svo merkileg. Hann er búinn að sigra á fimm mótum, þar af tveimur risamótum, þar sem hann er að keppa sem nýliði, einu móti á heimsmótaröðinni, þannig að þrjú af þessum mótum eru allir þeir bestu með.“ segir Þorsteinn og bætir við: „Mér finnst þetta frábær leið sem Collin Morikawa valdi, að klára skólann. Hann er núna á þriðja sæti heimslistans og framtíðin er björt hjá honum.“ Aðspurður um líkindi milli Morikawa og Tiger Woods segir Þorsteinn: „Það er mikið sjálfstraust og mikill agi, en kannski munurinn á honum og Tiger er að mér finnst Morikawa mannlegri. Hann er skemmtilegur á að horfa, góður í viðtölum og frábær fyrirmynd fyrir alla kylfinga.“ Viðtalið við Þorstein má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: Collin Morikawa Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone. Mest lesið Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Enski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti Gunnar um að mæta dóttur sinni: „Hélt langmest með henni af öllum inn á vellinum“ Sport Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir Körfubolti „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Handbolti „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ Körfubolti „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Körfubolti Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki Fótbolti Fleiri fréttir Tiger og Rory fá rosalega hollustubónusa Rory McIlroy fordæmir falsfrétt „Hann hefur sjokkerað allan heiminn“ Fær miklu meira borgað fyrir sigur á Masters í ár en fyrir tveimur árum „Með betri stjórn á tilfinningunum mínum en nokkurn tímann áður“ Scheffler í sérflokki á Masters Ekkert fær Scheffler stöðvað Tiger Woods spilar samhliða áhugamanni eftir erfiðan gærdag Degi þrjú lokið: Scheffler enn á toppnum þrátt fyrir tvöfaldan skolla Scheffler efstur á meðan Woods fellur neðar og neðar Reiddist áhorfendum eftir þrefaldan skolla: „F**k off“ Þrír á toppnum eftir dag tvö Metið innan seilingar hjá Tiger Woods Tiger þarf að spila 23 holur í dag Útsendingin frá Mastersmótinu byrjar 11.45 í dag Danski tvíburinn sló óvænt í gegn fyrir myrkur „Það verður hátíð næstu daga“ Það sem þú þarft að vita fyrir Masters mótið sem byrjar í dag Líklegastur til að vinna en vill frekar vera viðstaddur fæðinguna McIlroy upp með sér vegna orða Tigers Bernard Langer frestar kveðjustundinni á Masters um eitt ár Ofurtölvan hefur litla trú á Rory McIlroy á Mastersmótinu Neitar að gefast upp en bætir líklega ekki við glæsta ferilskrá Tiger setur met ef hann nær niðurskurðinum á Masters Tiger skrúfar fyrir allt kynlíf Fékk aðstoð frá fyrrum þjálfara Tigers en besta ráðið kom frá dótturinni Sjá meira
„Hann er framtíðin í golfinu, hann er ungur strákur, 24 ára gamall. En þessi sigur kemur kannski ekkert endilega rosalega á óvart fyrir okkur sem erum að fylgjast mikið með golfinu, því að hann hefur verið mikið efni og er einstakur.“ segir Þorsteinn í viðtali við Stöð 2 Sport. Morikawa hefur farið aðra leið en margir af þeim bestu þar sem hann var skráður sem áhugamaður á meðan hann kláraði háskólanám. Tiger Woods, til að mynda, hætti í námi eftir tvö ár í háskóla til að einbeita sér að atvinnumannaferli. „Hann klárar Berkeley-háskóla, þar sem hann er frá 2015 til 2019, sigrar á mótum þar, á frábæran feril - klárar námið sem viðskiptafræðingur og er efsti maður á heimslista áhugamanna,“ segir Þorsteinn. Líkt og fram kom að ofan þá var Morikawa að taka þátt á Opna breska í fyrsta sinn um helgina, hann lauk keppni á 15 höggum undir pari, tveimur á undan landa sínum Jordan Spieth sem varð annar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann vinnur risamót á frumraun sinni en hann gerði slíkt hið sama á PGA-meistaramótinu á síðasta ári. „Hann er búinn að á 42 mótum sem atvinnumaður, þar sem hann hefur alltaf komist í gegnum niðurskurðinn, Tiger Woods á metið, með 45, hann gæti slegið það en þessi mót sem hann er búinn að vinna, þau eru svo merkileg. Hann er búinn að sigra á fimm mótum, þar af tveimur risamótum, þar sem hann er að keppa sem nýliði, einu móti á heimsmótaröðinni, þannig að þrjú af þessum mótum eru allir þeir bestu með.“ segir Þorsteinn og bætir við: „Mér finnst þetta frábær leið sem Collin Morikawa valdi, að klára skólann. Hann er núna á þriðja sæti heimslistans og framtíðin er björt hjá honum.“ Aðspurður um líkindi milli Morikawa og Tiger Woods segir Þorsteinn: „Það er mikið sjálfstraust og mikill agi, en kannski munurinn á honum og Tiger er að mér finnst Morikawa mannlegri. Hann er skemmtilegur á að horfa, góður í viðtölum og frábær fyrirmynd fyrir alla kylfinga.“ Viðtalið við Þorstein má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: Collin Morikawa Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.
Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.
Mest lesið Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Enski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti Gunnar um að mæta dóttur sinni: „Hélt langmest með henni af öllum inn á vellinum“ Sport Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir Körfubolti „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Handbolti „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ Körfubolti „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Körfubolti Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki Fótbolti Fleiri fréttir Tiger og Rory fá rosalega hollustubónusa Rory McIlroy fordæmir falsfrétt „Hann hefur sjokkerað allan heiminn“ Fær miklu meira borgað fyrir sigur á Masters í ár en fyrir tveimur árum „Með betri stjórn á tilfinningunum mínum en nokkurn tímann áður“ Scheffler í sérflokki á Masters Ekkert fær Scheffler stöðvað Tiger Woods spilar samhliða áhugamanni eftir erfiðan gærdag Degi þrjú lokið: Scheffler enn á toppnum þrátt fyrir tvöfaldan skolla Scheffler efstur á meðan Woods fellur neðar og neðar Reiddist áhorfendum eftir þrefaldan skolla: „F**k off“ Þrír á toppnum eftir dag tvö Metið innan seilingar hjá Tiger Woods Tiger þarf að spila 23 holur í dag Útsendingin frá Mastersmótinu byrjar 11.45 í dag Danski tvíburinn sló óvænt í gegn fyrir myrkur „Það verður hátíð næstu daga“ Það sem þú þarft að vita fyrir Masters mótið sem byrjar í dag Líklegastur til að vinna en vill frekar vera viðstaddur fæðinguna McIlroy upp með sér vegna orða Tigers Bernard Langer frestar kveðjustundinni á Masters um eitt ár Ofurtölvan hefur litla trú á Rory McIlroy á Mastersmótinu Neitar að gefast upp en bætir líklega ekki við glæsta ferilskrá Tiger setur met ef hann nær niðurskurðinum á Masters Tiger skrúfar fyrir allt kynlíf Fékk aðstoð frá fyrrum þjálfara Tigers en besta ráðið kom frá dótturinni Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti