Hrauninu verður leyft að flæða yfir Suðurstrandarveg Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 18. júní 2021 18:31 Hraun rennur í Nátthaga frá eldgosinu í Fagradalsfjalli. Vísir/Vilhelm Ekki verður reynt að koma í veg fyrir að hraun úr Geldingadölum flæði yfir Suðurstrandarveg, en þess í stað verður hugað að því að verja Grindavíkurbæ og nærliggjandi vegi. Búist er við að hraunið muni skríða yfir veginn á næstu vikum.
Hafist var handa í vikunni við að reisa fjögurra metra háan leiðigarð syðst í Geldingadölum til að koma í veg fyrir að hraun renni niður í Nátthagakrika. Almannavarnir funduðu um stöðu mála, þar sem til skoðunar var að setja upp frekari varnarvirki. Fallið var frá þeim fyrirætlunum, segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum. „Eftir þá skoðun var ákveðið að aðhafast ekkert,” segir hann. Hraunið mun þar af leiðandi flæða yfir Suðurstrandarveg, sem talið er að muni gerast á næstu einni til þremur vikum. „Við vitum ekki 100 prósent hvaða áhrif þetta hefur á ljósleiðarann sem er þarna á svæðinu. Það er búið að færa hann aðeins til og setja hann dýpra, en hvort það dugi til á eftir að koma í ljós.” Fleiri innviðir eru undir, til dæmis Ísólfsskáli, en talið er nær fullvíst að hann fari einni gundir hraun. „Við erum að horfa fram á að þessi atburður geti staðið í einhver ár og jafnvel áratugi og þá þurfum við bara að endurmeta stöðuna. Hingað til höfum við verið að draga línu í sandinn og svo er farið í þá línu og þá er dregin ný lína, en núna erum við bara að skoða þetta í stærra samhengi og hvaða mannvirki og innviðir á svæðinu skipta stærra máli og einbeita okkur að þeim í staðinn.” Rögnvaldur segir að horft verði á Grindavíkurbæ, Grindavíkurveg, Reykjanesbraut og Svartsengi. „Þetta eru töluvert stórir hagsmunir sem við erum að horfa á.” Þá tekur hann fram að hraunið sé nú meira þunnfljótandi en í upphafi og ferðist þar af leiðandi hraðar. „Við erum að undirbúa okkur undir það versta í sjálfu sér. Það er ólíklegt að hraunið fari svona langt, en það er hægt og getur það fræðilega og vísindalega séð. Þannig að við verðum að undirbúa okkur undir þann möguleika.”
Eldgos í Fagradalsfjalli Grindavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Erlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Innlent Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Innlent Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira