Innlent

Sýknaður í Landsrétti eftir sextán ára dóm í héraði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Maðurinn sem lést féll fram af svölum fjölbýlishúss í Úlfarárdal 8. desember.
Maðurinn sem lést féll fram af svölum fjölbýlishúss í Úlfarárdal 8. desember. Vísir/Frikki

Lithái á sextugsaldri hefur verið sýknaður af ákæru fyrir að hafa banað landa sínum á svipuðu reki í Úlfarsárdal þann 8. desember 2019. Karlmaðurinn, Arturas Leimontas, var sakfelldur fyrir manndráp í héraðsdómi í janúar og dæmdur í sextán ára fangelsi.

Arturas var ákærður fyrir manndráp með því að hafa veist með ofbeldi að hinum manninum á svölum íbúðarinnar. Var honum gefið að sök að hafa í kjölfarið kastað honum fram af svölunum þannig að maðurinn féll 6,96 metra niður á steypta stétt og lést skömmu síðar af áverkum sínum.

Í dómi Landsréttar kom fram að ekkert vitni bæri um það sem Arturas væri gefið að sök og sýnileg sönnunargögn sönnuðu ekki háttsemina. Byggði ríkissaksóknari á því að sérfræðileg sönnunargögn, annars vegar réttarmeinafræðileg gögn og hins vegar raunvísindaleg gögn um ferla við fall fram af svölum, sönnuðu háttsemi Arturas.

Landsréttur, sem skipaður var sérfróðum meðdómendum, fór yfir hin réttarmeinafræðilegu gögn og taldi þau ekki sanna háttsemi. Þá útilokuðu hin raunvísindalegu gögn ekki að karlmaðurinn sem lést hefði getað stokkið fram af svölunum og lent með þeim hætti sem hann gerði.

Talið var að þeir áverkar sem greindust á iljum brotaþola rímuðu ekki sérstaklega við þá atburðarás sem ríkissaksóknari byggði á í málinu.

Arturas hefði byggt á því að félagi hans kynni að hafa verið að reyna stökk fram af svölunum sem þeir hefðu lært í herþjónustu. Arturas sýndi við vettvangsgöngu tvívegis slíkt stökk fram af vegg og lýsti stökkinu nánar í skýrslu sinni fyrir Landsrétti. Stökk í þessa veru gæti hafa orðið til þess að félaginn lenti þar sem hann lenti, í þeirri stellingu sem hann endaði í, auk þess sem það gæti skýrt áverkana á iljum hans.

Slíkt stökk væri hvorki að finna í greiningu sérfræðings lögreglu né dómkvadds matsmanns og lögregla virtist ekkert hafa rannsakað þennan möguleika frekar. Taldi Landsréttur ekki sannað, svo að hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að Arturas hefði gerst sekur um þá háttsemi sem lýst væri í ákæru. Var hann því sýknaður.


Tengdar fréttir

Líkama látna líklega velt yfir handriðið og kastað

Við rannsókn á dauða manns sem lést eftir fall af svölum fjölbýlishúss í Grafarholti 8. desember 2019, komust sérfræðingar að þeirri niðurstöðu að „utanaðkomandi“ kraftur hefði orðið til þess að maðurinn fór fram af. 

Sextán ára fangelsi fyrir morð í Úlfarsárdal

Arturas Leimontas, Lithái á sextugsaldri, hefur verið dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að hafa banað landa sínum á sextugsaldri í Úlfarsárdal þann 8. desember 2019. Leimontas var sakfelldur fyrir að hafa hrint manninum fram af svölum á þriðju hæð fjölbýlishúss við Skyggnisbraut í Grafarholti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×