Þórólfur um meintan hræðsluáróður: „Þetta er ekki eitthvað sem ég er að búa til“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. október 2021 18:16 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir gefur lítið fyrir þá gagnrýni á orð hans um að hugsanlegt væri að inflúensa og RS-veira settu strik í reikninginn hvað varðaði afléttingar á sóttvarnatakmörkunum sé hræðsluáróður. Hann segir þau sem segja það ekki hafa kynnt sér málin nægilega vel.
Þórólfur sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í gær að hugsanlegt væri að inflúensa og RS-veira settu strik í reikninginn hvað varðaði afléttingar á sóttvarnatakmörkunum. Áfram ætti að aflétta smám saman en draga þyrfti lærdóm af bakslaginu síðasta sumar þegar öllum takmörkunum var aflétt. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sögðu sóttvarnalækni hins vegar ekki geta frestað afléttingu samkomutakmarkana og vísað til inflúensu og RS-vírus. Sjálfstæðiskonurnar krefjast þess að öllu verði aflétt strax. Spurði Hildur meðal annars hvort ekki væri nóg komið af þessum „tilhæfulausa hræðsluáróðri.“ Þórólfur var spurður út í þessa gagnrýni í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. „Þetta er ekki frá mér komið. Sóttvarnarstofnun Evrópu hefur bent á þetta og beðið þjóðir um að undirbúa sig fyrir veturinn með tilliti til Covid líka. Bæði hafa þessar stofnanir verið að benda á alvarleikann ef fólk fær þessar sýkingar á sama tíma og eins gæti verið að því að inflúensan gekk ekki í fyrra fengum við stærri inflúensufaraldur í ár sem að gæti haft áhrif á til dæmis sjúkrahúsin og heilbrigðiskerfið. Þannig að þetta er ekki frá mér komið, þetta er ekki eitthvað sem ég er að búa til,“ sagði Þórólfur. Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Sagði hann að þeir sem kölluðu þetta hræðsluáróður hefðu einfaldlega ekki kynnt sér málin nægjanlega vel. „Þetta er það sem norrænir kollegar, norræn heilbrigðisyfirvöld eru að tala um. Heilbrigðisyfirvöld í Bretland og Sóttvarnastofnun Evrópu hefur lagt áherslu á þetta. Ég hef heyrt líka aðila frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni tala um þetta þannig að þeir sem eru að tala um tilhæfulausan hræðsluáróður, þeir hafa bara ekki kynnt sér málin alveg,“ sagði Þórólfur. Sagði hann að ummæli hans um RS-vírusinn og inflúensuna snerust um að heilbrigðiskerfið gæti ráðið við að sinna slíkum tilfellum, auk Covid-19 tilfella. „Ég er ekki að tala um að það þurfi að halda þessum aðferðum áfram út af inflúensu, heldur erum við að tala um að vernda heilbrigðiskerfið og hluti af því er að reyna að hafa kerfið þannig að það geti tekið á móti inflúensu og RS eins og venjulega. En þá þurfum við líka að hafa bolmagn til að geta fengist við Covid-19.“ Tvö þúsund smit tengd Bankastræti Club síðan í sumar Þórólfur lagði áherslu á það í viðtali við fréttastofu í gær að ekki yrði opið fram á nótt á skemmtistöðum bæjarins ef slakað verður á samkomutakmörkunum. Sagði hann ljóst að þær bylgjur sem mest vandræði hafi skapað hafi hafist á djamminu. Þetta sæist glögglega í raðgreiningargögnum. Um 400 undirtegundir delta-veirunnar hefðu greinst hér á landi frá því að hún kom fyrst hingað. „Þar af eru fimm afbrigði sem að hafa smitað 100 manns eða fleiri. Þar á toppnum er þessi Bankastræti Club týpa sem greindist þar og tengdist þeim stað fyrst. Það eru yfir tvö þúsund manns sem að hafa greinst með þá tegund.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Næturlíf Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Segja nóg komið af hræðsluáróðri Þórólfs og vilja aflétta öllu strax Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segja sóttvarnalækni ekki geta frestað afléttingu samkomutakmarkana og vísað til inflúensu og RS-vírus. Sjálfstæðiskonurnar krefjast þess að öllu verði aflétt strax. 14. október 2021 14:52 Skipti gríðarlegu máli að ekki sé opið í bænum fram á nótt Sóttvarnalæknir segir Landspítalann þurfa svara því hvort hann sé í stakk búinn til að bregðast við auknum fjölda smita ef aðgerðum verður aflétt innanlands. Þetta segir hann í ljósi minnisblaðs forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra þar sem litið er til Norðurlanda sem hafa aflétt öllum sínum aðgerðum. 13. október 2021 12:12 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ný sýn fékk meirihluta Innlent Fleiri fréttir Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Sjá meira
Segja nóg komið af hræðsluáróðri Þórólfs og vilja aflétta öllu strax Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segja sóttvarnalækni ekki geta frestað afléttingu samkomutakmarkana og vísað til inflúensu og RS-vírus. Sjálfstæðiskonurnar krefjast þess að öllu verði aflétt strax. 14. október 2021 14:52
Skipti gríðarlegu máli að ekki sé opið í bænum fram á nótt Sóttvarnalæknir segir Landspítalann þurfa svara því hvort hann sé í stakk búinn til að bregðast við auknum fjölda smita ef aðgerðum verður aflétt innanlands. Þetta segir hann í ljósi minnisblaðs forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra þar sem litið er til Norðurlanda sem hafa aflétt öllum sínum aðgerðum. 13. október 2021 12:12