Skipaður samstarfsráðherra Norðurlanda

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að skipa Guðmund Inga Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, sem samstarfsráðherra Norðurlanda.

Samstarfsráðherra ber ábyrgð á norrænu ríkisstjórnarsamstarfi innan Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir hönd forsætisráðherra.

Norræna ráðherranefndin var stofnuð 1971 og er opinber samstarfsvettvangur ríkisstjórna Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar auk sjálfsstjórnarlandanna Álandseyja, Færeyja og Grænlands.

Norræna ráðherranefndin vinnur að sameiginlegum lausnum á þeim sviðum þar sem Norðurlöndin geta náð betri árangri með því að vinna saman en að leysa verkefnin hvert í sínu lagi, að því er segir í tilkynningu.

Í framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar er sett það markmið að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heim fyrir 2030.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert