„DeSaster“ er DeSantis hóf kosningabaráttu sína Samúel Karl Ólason skrifar 25. maí 2023 13:20 Ron DeSantis hefur loks staðfest að hann ætli að bjóða sig fram til forseta. AP/Robert F. Bukaty Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, opinberaði í gær það sem allir vissu, að hann ætlaði að sækjast eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins til forsetakosninga í Bandaríkjunum á næsta ári. DeSantis birti myndband þar sem hann kvartaði yfir ástandinu á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó og glæpatíðni í borgum, svo eitthvað sé nefnt.
Því næst fór DeSantis á Twitter Spaces með auðjöfrunum Elon Musk, sem á Twitter, og David Sacks, þar sem hann ræddi forsetaframboð sitt frekar. Óhætt er að segja að kosningabaráttan hafi ekki farið vel af stað, þar sem tæknileg vandræði skyggðu á DeSantis. Twitter Spaces er vettvangur á samfélagsmiðlinum Twitter þar sem fólk getur komið saman til að ræða ýmis málefni og aðrir notendur geta hlustað á. Umræðan í gær tafðist í minnst hálftíma í gær vegna tæknilegra vandamála, sem Musk og Sacks sögðu vera vegna þess hve margir væru að hlusta. Vefþjónar Twitter hefðu ekki ráðið við álagið. „Það er svo margt fólk,“ sagði Sacks á einum tímapunkti þegar tæknileg vandamál komu í veg fyrir útsendingu. „Við erum með svo margt fólk að við erum eiginlega að bræða vefþjónana, sem er gott.“ Á einum tímapunkti hélt Sacks því fram að aldrei áður hefði svo stór hópur komið saman á netinu, sem er langt frá því að vera rétt. AP fréttaveitan segir þó að þegar mest var, hafi um 420 þúsund manns verið að hlusta. Sacks er auðugur fjárfestir, sem stutt hefur DeSantis fjárhagslega og er vinur Musks. Hann stýrir einnig hlaðvarpi og stýrði umræðunni í gær. I m running for president to lead our Great American Comeback. pic.twitter.com/YmkWkLaVDg— Ron DeSantis (@RonDeSantis) May 24, 2023 Áður en viðburðurinn hófst í gær var notendum nokkrum sinnum sparkað út af Twitter og í þrjátíu mínútur gat umræðan ekki byrjað vegna tæknilegra vandræða. Frá því Musk keypti Twitter og sagði upp um áttatíu prósentum starfsmanna þess, og þar á meðal forriturum sem sáu um viðhald á samfélagsmiðlinum, hafa tæknileg vandamál ítrekað stungið upp kollinum. „Gallar. Tæknileg vandamál. Óþægilegar þagnir. Algerlega misheppnað og það er bara frambjóðandinn!“ sagði Steven Cheung, talsmaður Donalds Trump, fyrrverandi forseta og mótframbjóðanda DeSantis. Orðið „DeSaster“, sem er afbökun á orðinu „disaster“ eða „hörmung“, trendaði á Twitter í gær, sem þykir til marks um að kosningabarátta DeSantis hafi ekki farið vel af stað. Daðrar við íhaldsmenn Musk hefur sagt að hann sé hægri sinnaður miðjumaður en frá því hann keypti Twitter hefur hann ítrekað deilt falsfréttum og átt í samskiptum við og tekið undir með fjar-hægri aðilum á Twitter. Hann hefur sömuleiðis dregið verulega úr ritstjórn á samfélagsmiðlinum, að mestu leyti. Þá hefur Musk reglulega talað um „Woke mind virus“ eða „woke heilaveilu“ sem DeSantis hefur sömuleiðis reglulega kvartað yfir. Eins og það er orðað í grein AP þá hefur Musk verið að daðra við íhaldsmenn í Bandaríkjunum og hélt það áfram í gær. Nefndi Trump ekki á nafn DeSantis fór einnig í tvö viðtöl í gær. Annað á Fox News og hitt í útvarpi. Það vakti athygli í gær að DeSantis er ekki enn tilbúinn til að gagnrýna Donald Trump með beinum hætti og nefnir hann helst ekki á nafn. Enginn af forsetaframbjóðendum Repúblikanaflokksins hefur gert það en Trump hefur beint spjótum sínum að DeSantis, þar sem hann er með næst mest fylgi í könnunum. Trump hefur meðal annars kallað DeSantis „Meatball Ron“ eða „kjötbollu Ron“ um nokkuð skeið. Án þess að nefna Trump á nafn gagnrýndi DeSantis meðal annars forsetann fyrrverandi fyrir ráðningar hans. DeSantis sagði til að mynda að hann myndi reka Christopher Wray, yfirmann Alríkislögreglu Bandaríkjanna, á fyrsta degi og kenndi hann Jerome H. Powell, yfirmanni Seðlabankans, um verðbólgu í Bandaríkjunum. Í grein New York Times kemur einnig fram að fastasta skot DeSantis á Trump hafi komið í lok annars viðtals hans. Þá var hann spurður hvað hann myndi segja við aðra frambjóðendur sem vilji ekki taka þátt í kappræðum, sem er vísun í Trump sem hefur gefið í skin að hann muni ekki taka þátt í kappræðum. DeSantis sagði að fólk þyrfti að vinna fyrir hlutunum í stað þess að fá þá upp í hendurnar og það ætlaði hann að gera.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Twitter Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Mikil tíðindi í glænýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sjá meira