Leitarsvæðið á Faxaflóa stækkað í dag Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 5. desember 2022 10:50 Leit Landhelgisgæslunnar og björgunarsveita að skipverjanum heldur áfram í dag. Vísir/Vilhelm Leit að skipverja, sem féll útbyrðis af fiskiskipi á laugardag, heldur áfram í dag. Leitarsvæðið hefur verið stækkað nokkuð en bæði varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar og leitarskip björgunarsveita munu taka þátt í leitinni.
Leit hefur staðið yfir að manni sem féll frá borði línuskipsins Sighvats GK-57, sem er í eigu Vísis hf í Grindavík, síðan á laugardag. Varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar, Björgunarsveitir og fiskiskip og -bátar frá svæðinu hafa tekið þátt í leitinni um helgina. „Leit að skipverjanum hófst aftur í birtingu. Varðskipið Þór var á svæðinu í nótt og kemur til með að leita áfram í dag ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar,“ segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Auk þyrlu og varðskips muni björgunarskipið Oddur V. Gíslason frá Landsbjörgu taka þátt í leitinni í dag. „Leitarsvæðið hefur verið stækkað frá því í gær. Í gær vorum við að vinna á svæði sem eru 10x10 sjómílur, í radíus 25 sjómílum út frá Garðskaga. Í dag erum við að vinna með svæði sem eru 18x18 sjómílur þannig að við höfum stækkað leitarsvæðið frá því í gær,“ segir Ásgeir. „Í gær voru, þegar mest var, þrettán skip við leitina. Varðskipið Þór, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar ásamt fiskiskipum og -bátum á svæðinu og svo flaug þyrla Landhelgisgæslunnar sömuleiðis eftir hádegi og var þar við leit.“ Vel viðri til leitar í dag og staðan verði tekin eftir daginn. „Við munum nýta daginn, það viðrar vel til leitar í dag. Sjólag er gott, veðrið er gott. Svo munum við taka stöðuna eftir daginn í dag en munum nýta daginn til leitar.“
Leit að skipverja á Sighvati GK-57 Landhelgisgæslan Björgunarsveitir Sjávarútvegur Samgönguslys Tengdar fréttir Sjómaðurinn sem leitað er var skipverji á Sighvati GK-57 í eigu Vísis hf. Sjómaðurinn sem leitað hefur verið að frá því á laugardag féll frá borði Sighvats GK-57, línuskips í eigu Vísis hf. Frá þessu er greint í tilkynningu frá útgerðarfélaginu sem Morgunblaðið hefur undir höndum. 5. desember 2022 08:47 Hefja leit að nýju við birtingu Leitinni að skipverja sem féll útbyrðis síðdegis í gær var frestað á tíunda tímanum í kvöld, en leit hefur ekki borið neinn árangur. Varðskipið Þór verður á svæðinu í nótt og mun áhöfn þess hefja leit aftur í birtingu. 4. desember 2022 22:44 Þyrlur hættar leit en skip halda áfram fram eftir kvöldi Leit stendur enn yfir að skipverjanum sem féll útbyrðis af fiskiskipi á utanverðum Faxaflóa síðdegis í gær, þrátt fyrir að komið sé fram í myrkur. 4. desember 2022 18:28 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira
Sjómaðurinn sem leitað er var skipverji á Sighvati GK-57 í eigu Vísis hf. Sjómaðurinn sem leitað hefur verið að frá því á laugardag féll frá borði Sighvats GK-57, línuskips í eigu Vísis hf. Frá þessu er greint í tilkynningu frá útgerðarfélaginu sem Morgunblaðið hefur undir höndum. 5. desember 2022 08:47
Hefja leit að nýju við birtingu Leitinni að skipverja sem féll útbyrðis síðdegis í gær var frestað á tíunda tímanum í kvöld, en leit hefur ekki borið neinn árangur. Varðskipið Þór verður á svæðinu í nótt og mun áhöfn þess hefja leit aftur í birtingu. 4. desember 2022 22:44
Þyrlur hættar leit en skip halda áfram fram eftir kvöldi Leit stendur enn yfir að skipverjanum sem féll útbyrðis af fiskiskipi á utanverðum Faxaflóa síðdegis í gær, þrátt fyrir að komið sé fram í myrkur. 4. desember 2022 18:28