Ákæra dómsmálaráðherra Texas fyrir embættisbrot Samúel Karl Ólason skrifar 26. maí 2023 16:54 Ken Paxton, dómsmálaráðherra Texas, hefur lengi verið umdeildur. AP/Tony Gutierrez Ríkisþingmenn í Texas tóku í gær skref í því að ákæra Ken Paxton, dómsmálaráðherra ríkisins, fyrir embættisbrot og spillingu. Ákæran er í tuttugu liðum en Paxton hefur um árabil verið viðloðinn ýmis hneykslismál.
Meðlimir rannsóknarnefndar ríkisþingsins, sem leidd er af Repúblikönum, samþykktu samhljóða í gær að leggja ákæruna fyrir þingið og verður mögulega greitt atkvæði um hana þar í dag, samkvæmt AP fréttaveitunni. Verði ákæran samþykkt gæti yrði Paxton vikið samstundis úr embætti. Gerist það, yrði Paxton þriðji maðurinn í sögu Texas sem yrði vikið úr embætti með þessum hætti. Paxton hefur lengi verið umdeildur en hann bað Hæstarétt Bandaríkjanna árið 2020 um að fella sigur Joe Biden, forseta, úr gildi. Hann hefur einnig verið til rannsóknar af Alríkislögreglu Bandaríkjanna vegna gruns um að hann hafi beitt embætti sínu til að hjálpa manni sem hefur styrkt kosningabaráttu hans í gegnum árin. Þar að auki var Paxton ákærður fyrir fjársvik árið 2015 en samkvæmt AP hefur það mál aldrei ratað í dómsal. Rannsókn Repúblikana leit fyrst dagsins ljós á þriðjudaginn en þá brást Paxton reiður við. Hann staðhæfði að Dade Phelan, forseti þingsins, sem Paxton kallaði „frjálslyndan“ eiga í pólitískum árásum gegn sér og kallaði eftir afsögn hans. Þá sakaði Paxton Phelan um að hafa verið ölvaðan á þingi í síðustu viku. „Þetta er sorgardagur í Texas þar sem við verðum vitni að spilltum langtíma stjórnmálamönnum sameinast í þessari ólögmætu tilraun til að fella vilja fólksins úr gildi og gera lítið úr atkvæðum kjósenda ríkisins,“ sagði Paxton í yfirlýsingu í gær. Þá hélt hann því fram að ekkert væri til í ásökunum gegn honum. Beitti embætti sínu í þágu vinar Farið er yfir ákæruliðina gegn Paxton í grein Texas Tribune en margar þeirra snúast um að ráðherrann hafi brugðist opinberum skildum sínum og misbeitt valdi sínu sem dómsmálaráðherra í þágu vina sinna og annarra. Sérstaklega Nate Paul, sem er bæði vinur Paxton og stuðningsmaður. Einn liður snýr að mútuþægni þar sem Repúblikanar segja Paxton hafa beðið Paul um að ráða konu sem Paxton var að halda við á þeim tíma. Paul greiddi einnig fyrir endurbætur á heimili Paxton í skiptum fyrir lagalega aðstoð. Þá er Paxton sakaður um að hafa látið opinbera starfsmenn vinna í þágu Paul svo það hafi kostað Texas minnst 72 þúsund dali. Paxton er einnig sakaður um spillingu í tengslum við áðurnefnda fjársvikaákæru. Hann er meðal annars sakaður um að hafa komið í veg fyrir að ákærurnar yrðu opinberaðar fyrir kosningar, sem hann vann svo.
Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent „Galið að fara svona með opinbert fé“ Innlent Hélt að pallurinn væri niðri og „þrumar á brúna og slítur hana niður“ Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Hafi líklega keyrt Yarisinn smá spotta og síðan skipt um bíl Innlent Fleiri fréttir Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sjá meira