Trúnaðarmaður á Morgunblaðinu segir af sér vegna afskipta BÍ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 3. maí 2021 11:56 Trúnaðarmaður Blaðamannafélags Íslands á Morgunblaðinu hefur sagt af sér vegna afskipta BÍ af auglýsingabirtingu Samherja á mbl.is. Vísir Trúnaðarmaður Blaðamannafélags Íslands á Morgunblaðinu hefur sagt af sér vegna afskipta stjórnar BÍ af auglýsingabirtingu Samherja á mbl.is. Hann telur að með afskiptum sínum fari stjórn félagsins langt út fyrir sitt hlutverk og segist hann ekki treysta sér til að verja þau afskipti sem fulltrúi félagsins á Morgunblaðinu.
Þetta segir í tilkynningu frá Guðna Einarssyni, trúnaðarfulltrúa BÍ á Morgunblaðinu, sem birt var á vef BÍ í morgun. Guðni hefur starfað á Morgunblaðinu í áratugi og segir hann í tilkynningu að hann telji að stjórnin hafi brotið gegn lögum BÍ með því að hafa afskipti af auglýsingum blaðsins. „Var stjórnin að gæta hagsmuna allra félagsmanna sinna eða að standa vörð um prent- og tjáningarfrelsi? Var hún að slá skjaldborg um sjálfstæði fjölmiðla?“ spyr Guðni í tilkynningunni. Stjórn Blaðamannafélagsins fordæmdi í gær að Árvakur, útgáfufélag mbl.is, hafi birt auglýsingu frá Samherja sem var hluti af herferð fyrirtækisins gegn fréttamanninum Helga Seljan. Í auglýsingunni sem um ræðir, sem ber yfirskriftina „Ábyrgðarleysi í Efstaleiti, er meðal annars kvartað undan því að niðurstaða siðanefndar RÚV muni ekki leiða til þess að Helga verði bannað að fjalla frekar um Samherja. „Hún [stjórnin] ætti að sjá sóma sinn í að draga gagnrýni sína til baka og einbeita sér að tilgangi félagsins,“ skrifar Guðni og vísar í lög Blaðamannfélagsins. „Samkvæmt lögum félagsins er tilgangur þess að gæta „faglegra og stéttarlegra hagsmuna félagsmanna í hvívetna“ (1.gr.). Einnig að „standa vörð um prent- og tjáningarfrelsi“ (1.2 b gr.) og að hafa „áhrif á opinbera stefnu og samfélagslega umræðuu um fjölmiðlun og tjáningarfrelsi“ (1.2 d). Síðast en ekki síst: „Að standa vörð um ritstjórnarlegt frelsi og sjálfstæði fjölmiðla“ (1.2 e),“ skrifar Guðni. „Kínamúr“ milli ritstjórnar og auglýsingadeildar Guðni segir að þegar hann hafi byrjað í blaðamennsku hafi hann lært að svokallaður „Kínamúr“ væri á milli ritstjórnar og auglýsingadeildar. Blaðamenn skiptu sér ekki af auglýsingum og skrifuðu ekki auglýsingaefni og öfugt. „Þessi regla hefur almennt gilt á ritstjórnum sem hafa einhvern metnað og sjálfsvirðingu. Telji menn að tilteknar auglýsingar séu meiðandi eða ósannar þá eru leiðir til að taka á því, t.d. fyrir dómstólum,“ skrifar Guðni. Þá gagnrýnir hann rekstrarskilyrði annarra fjölmiðla en Ríkisútvarpsins, sem „árlega fær hátt meðlag frá skattgreiðendum auk þess að vera fyrirferðarmikið á auglýsingamarkaði.“ „Aðrir útgefendur reiða sig að miklu leyti á auglýsingatekjur og sumir á áskriftartekjur að auki. Það að stéttarfélag blaðamanna skipti sér af tekjuöflun einstakra útgefenda er í mínum huga langt fyrir utan verksvið þess,“ skrifar Guðni. Ákvörðun BÍ um að fordæma birtingu Morgunblaðsins á auglýsingu samherja er meðal fyrstu verka Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, fréttamanns Ríkisútvarpsins, sem var á dögunum kjörin nýr formaður Blaðamannafélagsins.
Fjölmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Samherjaskjölin Tengdar fréttir Fordæma að Samherji hafi fengið að birta umdeilda auglýsingu á mbl.is Stjórn Blaðamannafélags Íslands (BÍ) fordæmir að Árvakur, útgáfufélag mbl.is, hafi birt auglýsingu frá Samherja sem var hluti af herferð fyrirtækisins gegn fréttamanninum Helga Seljan. 2. maí 2021 19:00 Namibískir fjölmiðlamenn senda frá sér harðorða yfirlýsingu Í tilkynningu frá samtökum blaðamanna í Namibíu (NAMPU) er harmað að Ísland sé nú óðum að stefna inn á lista yfir lönd hvar blaðamönnum er ekki óhætt að sinna starfi sínu. 3. maí 2021 10:42 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira
Fordæma að Samherji hafi fengið að birta umdeilda auglýsingu á mbl.is Stjórn Blaðamannafélags Íslands (BÍ) fordæmir að Árvakur, útgáfufélag mbl.is, hafi birt auglýsingu frá Samherja sem var hluti af herferð fyrirtækisins gegn fréttamanninum Helga Seljan. 2. maí 2021 19:00
Namibískir fjölmiðlamenn senda frá sér harðorða yfirlýsingu Í tilkynningu frá samtökum blaðamanna í Namibíu (NAMPU) er harmað að Ísland sé nú óðum að stefna inn á lista yfir lönd hvar blaðamönnum er ekki óhætt að sinna starfi sínu. 3. maí 2021 10:42