Biles negldi hættulegt stökk á æfingu sem þjálfarinn vill síður sjá í Tókýó Valur Páll Eiríksson skrifar 24. júlí 2021 07:01 Biles á Ólympíutitil að verja. Laurence Griffiths/Getty Images Fimleikastjarnan Simone Biles sást framkvæma sögulegt stökk á æfingu bandaríska fimleikalandsliðsins í Japan í gær. Liðið æfir fyrir Ólympíuleikana sem settir voru í gær en þjálfari Biles er ekki spenntur fyrir að hún framkvæmi stökkið á leikunum.
Upptaka náðist af Biles að framkvæma stökkið sem á ensku kallast Yurchenko double pike vault. Þar lendir fimleikamaðurinn þreföldu heljarstökki frá brettinu, aftur á bak, og í vinklaðri stöðu. Biles náði því í annarri tilraun á æfingunni í gær, eftir að hafa mistekist í þeirri fyrstu. Biles framkvæmdi stökkið á US Classic mótinu í maí, og er eina konan sem hefur gert slíkt. Þá fékk hún einkunnina 16.100 fyrir stökkið sem er næst hæsta einkunn sögunnar. Vilji Biles að stökkið sé nefnt eftir sér þarf hún að framkvæma það á Ólympíuleikunum. Stökkið yrði þá fimmta hreyfingin sem nefnd er í höfuð á Biles. Upprunalega Yurchenko-stökkið er nefnt eftir hinni rússnesku Nataliu Yurchenko sem framkvæmdi það á ÓL 1980 en Biles hefur bætt heljarstökki við þá hreyfingu, sem gerir stökkið einkar frambærilegt, en einnig hættulegt. Þarf að grátbiðja þjálfarann Biles æfði stökkið fyrir bandaríska meistaramótið en sagði þá að hún stífnaði upp í ökklunum við það. Nokkrum vikum síðar sagði Laurent Landi, þjálfari bandaríska fimleikaliðsins, að hann vildi ekki að hún hætti á að meiða sig frekar í ökklunum með því að framkvæma stökkið. Það ber við sama tón nú, þar sem Landis segir stökkið ekki vera áhættunnar virði. NBC hefur eftir Landis: „Ef hún virkilega vill gera það, þarf hún að grátbiðja mig,“ „Fólk virðist gleyma því að þetta er mjög, mjög hættulegt stökk. Að framkvæma það einungis fyrir dýrðarljóma og stig, er hreinlega ekki nóg,“ sagði Landis enn fremur. Landis hefur í það minnsta útilokað að Biles framkvæmi stökkið í undanúrslitum á leikunum þar sem það gæti haft áhrif þegar í úrslitin er komið. Biles neitaði fjölmiðlum um viðtöl eftir æfingu gærdagsins en áhugavert verður að sjá hvað verður á komandi leikum.
Fimleikar Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Mest lesið „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Enski boltinn „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Körfubolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Íslenski boltinn Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Enski boltinn Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Handbolti Fleiri fréttir Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ „Mætum til Eyja á miðvikudaginn til þess að loka þessu“ „Ég skaut bara á markið og vonaði það besta“ Brunson skaut Philadelphia í kaf Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Já ég hef skoðun á því, ég ætla bara ekki að segja hana“ „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Íslenski boltinn