Handbolti

„Ég get alveg séð það fyrir mér að eitthvert lið fari heim af HM“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Goran Sogard Johannessen  og félagar í norska landsliðinu töpuðu fyrsta leik sínum á HM og hafa auk þess verið mjög ósáttur með skipulag og smitvarnir mótsins.
Goran Sogard Johannessen  og félagar í norska landsliðinu töpuðu fyrsta leik sínum á HM og hafa auk þess verið mjög ósáttur með skipulag og smitvarnir mótsins. EPA-EFE/Anne-Christine Poujoulat

Heimsmeistaramótið í handbolta í Egyptalandi var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Sportið í dag á Vísi. Kórónuveirusmit hafa sett sinn svip á mótið síðustu daga.

Tvö lið hafa þegar hætt við þátttöku á HM og þá hafa verið að greinast smit inn á hóteli mótsins í Kaíró. Norðmenn og Danir eru sérstaklega ósáttir með allt á sínu hóteli hafa gagnrýnt skipulagið á mótinu harðlega.

Henry Birgir Gunnarsson fékk þá Guðjón Guðmundsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson til að ræða heimsmeistaramótið í handbolta og þar á meðal fóru þeir yfir smitvarnirnar hjá Egyptum.

Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að það sé allt annað upp á teningnum hjá Egyptum en var hjá Dönum þegar þeir héldu Evrópumeistaramót kvenna í desember. Það mót gekk mjög vel en nú kemur hver fréttin á fætur annarri um að eitthvað sé að klikka hjá Egyptum.

„Þetta virkar eiginlega þannig. Danir og Norðmenn halda áfram að mótmæla en um leið og Þýskaland og Frakkland bætast í hópinn þá er ballið búið,“ sagði Guðjón Guðmundsson.

„Miðað við óánægjuna sem er í gangi, varðandi skipulagið og allt sem snertir smitprófin, sjáið þið fyrir ykkur að eitthvað lið leggi upp laupana og sendi bara liðið sitt heim,“ spurði Henry Birgir Gunnarsson.

„Já. Ég get alveg séð það fyrir mér að eitthvert lið fari heim af HM. Liði sem gengur ekkert sérstaklega vel, leikmennirnir verða orðnir pirraðir og finnst þeim vera óöryggir. Þeir gæti alveg sagt: Stopp, ég tek ekki áhættuna á þessu því þetta er ekki þess virði,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson.

„Vandamálið er það að þetta snýst allt um peninga og fyrir þátttökuþjóðirnar líka. Menn munu hugsa sig tvisvar um áður en þeir taka þá ákvörðun að snúa heim og hætta við þátttöku. Einfaldlega vegna þess að þeim verður refsað, þeir fá ekki að fara á næsta heimsmeistaramót og heima fyrir munu þeir ekki fá styrki til að reka samböndin. Þetta er afar snúið mál,“ sagði Guðjón.

Íslenska liðið virðist þó vera á miklu betri hóteli og í miklu betra skipulagi en Norðmenn. Sem eru góðu fréttirnar fyrir strákana okkar.

Það má finna allan þáttinn hér fyrir ofan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×