Dauðsföll af völdum Covid-19 mun tíðari meðal stuðningsmanna Trump Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. desember 2021 11:37 Repúblikanar eru sá hópur Bandaríkjamanna þar sem fæstir eru bólusettir. Getty/Scott Olson Frá því í maí á þessu ári hafa íbúar í sýslum þar sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, naut mikils stuðnings í síðustu forsetakosningum verið þrisvar sinnum líklegri til að deyja sökum Covid-19 en íbúar sýsla þar sem stuðningur við Joe Biden var verulegur.
Þetta eru niðurstöður rannsóknar NPR en horft var til dauðsfalla á hverja 100.000 íbúa í 3.000 sýslum Bandaríkjanna frá því í vor, þegar bólusetningar voru almennt orðar aðgengilegar íbúum landsins. Einstaklingar sem bjuggu í sýslum þar sem stuðningur við Trump mældist 60 prósent eða meiri í forsetakosningunum í nóvember í fyrra voru 2,7 sinnum líklegri til að deyja af völdum Covid-19 en íbúar í sýslum þar sem Biden naut yfirgnæfandi stuðnings. Þá virðist fylgni vera milli fylgis Trumps og dauðsfalla af völdum Covid-19 en því meiri stuðnings sem hann naut í kosningunum því hærri var dánartíðnin af völdum kórónuveirunnar. Í október síðastliðnum var dánartíðnin í „rauðasta“ tíundahluta landsins sex sinnum meiri en í „bláasta“ tíundahlutanum. Í þessu samhengi stendur rauður fyrir Repúblikana og blár fyrir Demókrata. Þess ber að geta að þarna er að sjálfsögðu eingöngu horft til búsetu; það er ekki vitað hvernig þeir sem létust kusu í forsetkosningunum. Fylgnin var sterk jafnvel þegar leiðrétt var fyrir aldri, sem er helsti áhættuþátturinn þegar kemur að dánarlíkum í tengslum við Covid-19. Þá leiddi rannsóknin í ljós hvað það er sem veldur muninum; bólusetningartíðnin lækkar eftir því sem stuðningur við Trump eykst. Verulegur munur er á fjölda bólusettra meðal Repúblikana og Demókrata.Getty Samkvæmt NPR benda nýlegar skoðanakannanir til þess að Repúblikanar séu nú sá hópur Bandaríkjamanna sem er minnst bólusettur. Það má meðal annars rekja til falsfrétta og vantrausts á upplýsingum frá opinberum stofnunum. Liz Hamel, yfirmaður hjá Kaiser Family Foundation, segir pólitíska afstöðu nú sterkustu ábendinguna um hvort einstaklinur sé bólusettur. „Ef ég ætlaði að giska á hvort einhver væri bólusettur eða ekki og ég gæti bara fengið að vita eitt atriði um hann þá myndi ég sennilega spyrja hvaða flokk hann styddi,“ segir hún. Um 59 prósent Repúblikana eru bólusett en 91 prósent Demókrata. Könnun sem Kaiser framkvæmdi í október síðastliðnum leiddi í ljós að 94 prósent Repúblikana töldu að minnsta kosti eina ranga staðhæfingu um Covid-19 mögulega vera sanna. 46 prósent töldu að fjórar eða fleiri rangar staðhæfingar gætu verið sannar en sama hlutfall meðal Demókrata var 14%. Staðhæfingarnar vörðuðu meðal annars lyfið ivermectin og áhrif bólusetninga á óléttar konur og frjósemi. Sú ranga staðhæfing sem flestir trúðu var hins vegar: „Stjórnvöld eru að ýkja fjölda látinna af völdum Covid-19“. Hér má finna frétt NPR og uppýsingar um rannsóknina.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Bandaríkin Donald Trump Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira