800. mark Messi var glæsilegt aukaspyrnumark (myndskeið)

Lionel Messi er engum líkur.
Lionel Messi er engum líkur. AFP/Juan Mabromata

Lionel Messi skoraði 800. mark sitt á ferlinum fyrir félagslið og landslið er hann innsiglaði 2:0-sigur Argentínu á Panama í vináttulandsleik í nótt.

Messi hefur nú skorað 99 mörk fyrir argentínska landsliðið, 692 fyrir Barcelona og 29 fyrir París Saint-Germain, þar sem hann leikur nú.

Eins og Messi er von og vísa var 800. markið einkar glæsilegt, beint úr aukaspyrnu og má sjá það hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert