Jólin komin á fullt í Rúmfatalagernum Rúmfatalagerinn 21. október 2021 08:46 Jólin eru komin í Rúmfatalagernum og hillurnar svigna undan fallegum jólavörum. Ljósaseríur og luktir vinsælar til að lýsa upp skammdegið. „
Jólalínan frá Jysk í ár er einstaklega falleg og smart og höfðar til allra, í náttúrulegum litum í bland við gyllt, brons, silfur og hvítt. Það er mikið af basti og greni og fallegum jólakúlum, ljósaseríum og luktum. Fyrstu jólavörurnar komu inn um miðjan september,“ segir Vilma Ýr Árnadóttir, verslunarstjóri í Rúmfatalagernum Bíldshöfða. Vilma Ýr Árnadóttir, verslunarstjóri í Rúmfatalagernum Bíldshöfða Hún segir Íslendinga duglega við að lýsa upp skammdegið og jólaseríurnar fara vel af stað enda mjög vinsælar og í miklu úrvali. „Við eigum svo mikið úrval af fallegum seríum bæði úti og inni og af rafhlöðukertum og kertaluktum til að gera heimilið hlýlegt. Það er mjög fallegt að setja „warm white -seríur í vasa eða luktir nú þegar farið er að rökkva fyrr. Rafhlöðukertin eru mjög vinsæl og mætti eiginlega segja að þau séu til á hverju heimili. Það er líka gaman að setja seríur inni í barnaherbergi en yngsta kynslóðin er auðvitað lang spenntust fyrir jólunum og gaman fyrir þau að fá skraut inni í herbergi. Við eigum rafhlöðuseríur í öllum litum,“ segir Vilma og hvetur fólk til að koma við í verslunum Rúmfatalagersins og kíkja á útstillingarnar til að fá hugmyndir og komast í jólaskap. „Eitt mesta úrval jólavara er hjá Rúmfatalagernum en við pöntum alltaf jólavörur frá nokkrum framleiðendum til að eiga sem mest. Sumir vilja hafa minimalískan stíl meðan aðrir vilja hafa mikið skreytt og mikla liti. Fallega skreytt borð setur stemminguna og gerir allt jólalegra og við fengum til dæmis allskonar grenilengjur, fínlegar og þunnar með glimmeri og án. Þær er mjög fallegt að setja á mitt matarborðið og til eru fallegar diskamottur til að setja undir matardiskana, það setur skemmtilega hátíðarstemmingu. Svo er flott að setja eina ef ekki tvær jólakúlur á servíettuna á matardiskunum til að gera meiri hátíðarstemningu. Í verslunum okkar höfum við stillt upp fallegum útstillingum til að gefa hugmyndir að skreytingum,“ segir Vilma.
Jól Verslun Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Neytendur Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Ástin laðar að: Gott að vera kona á Íslandi, en ekki innflytjandi Atvinnulíf Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Atvinnulíf Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur Samstarf Tölum um neytendamál! Samstarf Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Viðskipti innlent Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tölum um neytendamál! Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur GreenCoat er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Einblína á trausta ávöxtun til langs tíma Fjölbreytt vöruúrval og ein bestu verð hérlendis Toyota sýnir úrvals fyrirtækjabíla á Verk og vit Nýr Toyota Yaris Hybrid frumsýndur á laugardag Leið eins og stjórnanda geimskips Hver verður iðnaðarmaður ársins 2024? Sjá meira