Samstarf Vinstri Grænna og Sjálfstæðisflokks ekki æskilegt til lengri tíma Sunna Sæmundsdóttir skrifar 20. september 2021 18:20 Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri Grænna og Sigríður Á. Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mættust í Pallborðinu í dag. vísir/Vilhelm Forseti Alþingis og einn stofnenda Vinstri Grænna efast um að stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn sé góður kostur til lengri tíma. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur samstarfið hafa leitt af sér pólitískan óróleika sem hafi skilað sér í fjölgun flokka.
Þingmenn Vinstri Grænna, Sjálfstæðisflokks og Pírata sem eru að segja skilið við stjórnmálin mættust í Pallborðinu á Vísi í dag. Steingrímur sagði Vinstri Græna ganga óbundna til kosninga þrátt fyrir að formenn stjórnarflokkanna hafi viðrað áhuga á áframhaldandi samstarfi. Mikil andstaða hefur verið gagnvart því innan raða Vinstri Grænna og samkvæmt könnun sem var gerð fyrir fréttastofuna í júní eru sjötíu prósent kjósenda VG mótfallin samstarfinu. Steingrímur sagðist skilja blendnar tilfinningar. Það hafi reynst mörgum erfitt að vinna með „höfuðandstæðingnum“. „Ég hef efasemdir um að svona samstarf eigi að vera til mjög langs tíma. Þá er ég að hugsa um langtímaþróun stjórnmálanna. En það getur verið mjög vel réttlætanlegt, skilað góðum árangri og gott fyrir land og þjóð eins og ég tel að þetta samstarf hafi verið,“ sagði Steingrímur. „Auðvitað er það málefnalega séð miku þægilegri og auðveldari kostur fyrir okkur að vinna með flokkum sem eru nær okkur í hinu pólitíska litrófi, ef það er í boði. Það er að segja ef hægt er að mynda sæmilega trausta ríkisstjórn frá vinstri til miðjunnar. En það verður að vera efniviður í hana.“ Sigríður Á. Andersen sagði flatneskju yfir Sjálfstæðisflokknum og að samtarfið hafi kallað á miklar málamiðlanir „Það getur verið vænlegt í skamman tíma en mér finsnt það ekki æskilegt og mér finnst það ekki eðlilegt til lengri tíma, hafi menn áhuga á að viðhalda einhverri hugmyndafræði og skýrum stefnum einstaklinga sem bjóða sig fram.“ Jón Þór Ólafsson sagði flokkanna hafa sameinast um íhaldið. „Þessir flokkar eru allir með framsóknararma. Þú ert með framsóknararm Vinstri Grænna og ert með framsóknararm Sjálfstæðismanna,“ sagði Jón Þór áður en Steingrímur greip orðið og gagnrýndi orðanotkunina. „Þetta er götustrákapólitík,“ sagði Steingrímur. Jón Þór hélt áfram og sagði þessa arma flokkanna hafa sameinast um að breyta hvorki landbúnaðar- né sjávarútvegskerfinu og halda sig við íhaldssöm fjármál. „Þarna sameinast vinstri og hægri í því að vera með íhaldið, að halda þessu óbreytt og standa vörð um kerfin.“ Steingrímur J. Sigfússon, er að kveðja stjórnmálin eftir að hafa setið á þingi í 38 ár.vísir/Vilhelm Sigríður gagnrýndi stjórnarandstöðuna fyrir máttleysi á kjörtímabilinu og sagði samstarf flokkanna hafa leitt af sér pólitískan óróleika og fjölgun flokka þar sem ósátt hægri- og vinstrifólk hafi fundið sér nýjan samastað. Litið til baka yfir kjörtímabilið sagðist Sigríður stoltust af skipan dómara í Landsrétt - skipan sem leiddi til afsagnar hennar sem ráðherra og sem Mannréttindadómstóll Evrópu taldi ólögmæta. „Þegar ég tók þá ákvörðun að láta ekki sjálfskipaða elítu með órökstuddum hætti taka fram fyrir hendurnar á mér eins og menn reyndu að gera,“ sagði Sigríður.
Pallborðið Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Alþingiskosningar 2021 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira