Nýliðarnir endurheimta leikmenn

Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar, Sigríður Sigurðardóttir, gjaldkeri Hattar og Gísli …
Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar, Sigríður Sigurðardóttir, gjaldkeri Hattar og Gísli Þórarinn Hallsson. Ljósmynd/Höttur

Hattarmenn á Egilsstöðum, sem leika á ný í úrvalsdeild karla í körfubolta næsta vetur, hafa endurheimt tvo leikmenn. Það eru þeir Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar og Gísli Þórarinn Hallsson. 

Benedikt kemur til félagsins frá Þór í Þorlákshöfn og Gísli kemur frá Sindra á Hornafirði. Þeir hafa báðir verið áður í röðum Hattar.

Höttur komst upp í úrvalsdeildina á síðasta tímabili og er að styrkja sig fyrir komandi leiktíð. Ásamt að fá þessa leikmenn hefur Höttur einnig framlengt við heimamennina Sigmar Hákonarson og Andra Björn Svansson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert