Portúgal án bestu leikmannanna

André Gomes sækir að vörn Íslands þegar þjóðirnar mættust á …
André Gomes sækir að vörn Íslands þegar þjóðirnar mættust á HM í Egyptalandi fyrir ári síðan. AFP

Handknattleikssamband Portúgals staðfesti í dag hvaða átján leikmenn myndu hefja Evrópukeppni karla í handknattleik en Ísland mætir Portúgal í fyrsta leik B-riðilsins í Búdapest á föstudagskvöldið.

Liðsvalið staðfestir að tveir af allrabestu leikmönnum portúgalska liðsins eru ekki klárir í slaginn en þeir André Gomes, skyttan öfluga hjá Melsungen, og Luis Frade, línumaðurinn sterki frá Barcelona, eru ekki í hópnum. Fyrr í mánuðinum kom fram að þeir væru væntanlega úr leik vegna meiðsla.

Di­ogo Silva, leik­maður Porto, Al­ex­is Bor­ges og Belone Mor­eira, leik­menn Ben­fica, Pedro Portela frá Nan­tes og Joe Ferraz frá Suhr Aar­au eru einnig allir fjarverandi í liði Portúgals.

Átta af átján leikmönnum liðsins koma frá portúgalska meistaraliðinu Porto.

Hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:
Gustavo Capdeville, Benfica
Manuel Gaspar, Sporting

Útispilarar:
Diogo Branquinho, Porto
Leonel Fernandes, Porto
Salvador Salvador, Sporting
Alexandre Cavalcanti, Nantes
Fabio Magalhaes, Porto
Gilberto Duarte, Montpellier
Tiago Rocha, Nancy
Daymaro Salina, Porto
Victor Iturriza, Porto
Daniel Vieeira, Avanca
Angel Hernandez, Kuwait SC
António Areia, Porto
Miguel Alves, Porto
Miguel Martins, Pick Szeged
Martim Costa, Sporting
Rui Silva, Porto

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert