Soffía Dögg fer af stað með nýja þáttaröð af Skreytum hús Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 21. október 2021 15:01 Þriðja þáttaröðin af Skreytum hús fer af stað á Vísi og Stöð 2+ í næstu viku. Stöð 2 Í næstu viku fer af stað hér á Vísi þriðja þáttaröðin af Skreytum hús. Soffía Dögg Garðarsdóttir er spennt að fara aftur af stað. Hundruð einstaklinga sóttu um að taka þátt og voru valin nokkur rými sem Soffía Dögg tekur í gegn í þáttunum. „
Rýmin sem voru valin eru frekar ólík og það var bara eitthvað sem heillaði þegar að ég sá myndina af því, einhver svona hugmynd sem kveiknaði. Nema í einu tilfellinu kom videóumsókn frá litlum dreng sem var svo mikið krúttsnúður að ég stóðst hann ekki,“ segir Soffía Dögg í samtali við Vísi. Það hefur gengið ótrúlega vel að taka upp, ég er svo heppin með fólkið í kringum mig að það nær bara engri átt. Strákarnir sem eru í framleiðslufyrirtækinu eru magnaðir, Siggi minn besti handyman er eins og mín hægri hönd og svo hafa þáttakendur verðið hver öðrum yndislegri - þannig að ég svíf bara á bleiku skýi. „Verkefnin eru misjöfn, við erum með alrými og eldhús, tvö barnaherbergi, sjónvarpsrými og skrifstofuaðstöðu í risi, fyrstu íbúð hjá ungu pari - stofa og svefnherbergi þar, herbergi hjá 11 ára dömu, þannig að það er mikið að gerast í þessu öllu. Ég held að áhorfendur geti búist við meira af því sama. Sem sé lausnir og hugmyndir sem gætu hentað þér til þess að poppa aðeins upp þitt rými án þess að það þurfi að slá niður veggi eða fara í risaframkvæmdir. Við erum að díla við það að málning og motta getur gert kraftaverk, og enginn skal vanmeta hvað púðar og allt þetta smálega gerir mikið.“ Veggurinn nánast óyfirstíganlegt verkefni Þættirnir verða sex talsins ins og í fyrri þáttaröðum. Þættirnir birtast eins og áður vikulega hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni. „Við stefnum að því að enda seríuna með góðgerðaþætti, því það var svo dásamlegt að aðstoða Hlaðgerðarkot í seinastaþætti. Þá erum við líka að nálgast jólin og það eiga allir að vera góðir á jólunum,“ segir Soffía. „Það er ýmislegt nýtt sem var prufað núna, það munar líka svo miklu að vera með Sigga snilling innan handar og hann nennir bókstaflega öllu sem ég sting upp á. Við erum svona aðeins að smíða og sníða hlutina betur að okkur og í barnaherbergi gerðum við vegg sem ég hélt að myndi buga mig. Siggi sagði að þetta væri snilldarverkefni fyrir eina helgi, svona til þess að setja upp og vinna sig í gegnum, en ég leit á hann og sagði - hvernig hljóma fjórar klst? Svo líka allt hitt sem þarf að gera - oh my! Þetta var svakalegt.“ Komin í jólagírinn Í kvöld frá átta til tíu stendur Soffía Dögg fyrir jólaviðburði, enda er hún strax byrjuð að hugsa út í jólaskreytingar. „Við ætlum við að starta jólavertíðinni með SkreytumHús-jólakvöldinu okkar í Rúmfatalagerinum á Smáratorginu,“ segir Soffía spennt. „Við höfum haldið þetta árlega (nema í fyrra og svona vesen) síðan held ég 2015. Ótrúlega skemmtilegt kvöld en ég er í Rúmfó í nokkra daga og set upp alls konar jólaskreytingar og hugmyndir. Síðan opnar húsið og þá er afsláttur af öllu, það eru svakaleg tilboð á vörum sem ég hef sjálf valið (upp að 40%) og við gefum nokkra stóra gjafapoka yfir kvöldið. Hann Ívar verslunarstjóri og stórvinur minn er með mér í þessu, og hann er svoddan gleðisprengja og smitar út frá sér, þannig að þarna eru allir kátir og spenntir í að byrja að jóla smá yfir sig. Það eru allir velkomnir en ef fólk vill skrá sig á viðburðinn þá er event inni á Facebook,“ segir Soffía. „Mér finnst ég vera svo óendanlega heppin að fá þetta tækifæri, að vinna, lifa og hrærast svona í minni ástríðu - það er alveg magnað. Allt fólkið sem tekur þátt í þáttunum, að finna traustið sem manni er veitt er hreint út sagt ótrúlegt. Svo bara að finna stuðninginn frá öllum í kringum mig, að vera með viðburð eins og í kvöld, þar sem fullt af fólki kemur til þess að sjá og skoða og detta í jólagírinn - bara æðislegt. Svo í næstu viku endurtek ég leikinn í Rúmfó á Akureyri, sem er æði. Þannig að ég er bara á bleiku skýi, sem svona jólóskýi en samt skýi,“ segir Soffía að lokum. Fyrri þáttaraðirnar má sjá HÉR á Vísi.
Skreytum hús Tengdar fréttir Vilt þú taka þátt í þriðju þáttaröð af Skreytum hús? Vísir leitar nú að þátttakendum fyrir þriðju þáttaröðina af Skreytum hús, sem sýndir eru hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni. Í þáttunum tekur Soffía Dögg Garðarsdóttir rými í gegn og fá áhorfendur að fylgjast með ferlinu alveg frá byrjun. 13. september 2021 13:31 „Búin að gráta nokkrum sinnum í þessu ferli“ Soffía Dögg Garðarsdóttir tók í gegn setustofuna á áfangaheimilinu Brú lokaþættinum af Skreytum hús. 16. maí 2021 10:00 Mest lesið „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Lífið Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið Bakaríið í beinni Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti Sjá meira
Vilt þú taka þátt í þriðju þáttaröð af Skreytum hús? Vísir leitar nú að þátttakendum fyrir þriðju þáttaröðina af Skreytum hús, sem sýndir eru hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni. Í þáttunum tekur Soffía Dögg Garðarsdóttir rými í gegn og fá áhorfendur að fylgjast með ferlinu alveg frá byrjun. 13. september 2021 13:31
„Búin að gráta nokkrum sinnum í þessu ferli“ Soffía Dögg Garðarsdóttir tók í gegn setustofuna á áfangaheimilinu Brú lokaþættinum af Skreytum hús. 16. maí 2021 10:00