BSRB fari fram með áróður sem skaði láglaunafólk Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 22. nóvember 2021 11:21 Aðalsteinn situr í samninganefnd Starfsgreinasambandsins. vísir/vilhelm Stjórnarmaður í Starfsgreinasambandinu segir BSRB fara með rangfærslur um launamun milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins. Hann óttast að yfirlýsingarnar geti skaðað lægst launaðu umbjóðendur sína.
BSRB eru stærstu samtök opinberra starfsmanna á Íslandi og semja um kjör félagsmanna sinna við svetarfélög og ríki. Starfsgreinasambandið er sömuleiðis stæsta samband starfsfólks á almennum vinnumarkaði og semur við Samtök atvinnulífsins. BSRB hefur undanfarið talað fyrir því að launamunur opinberra starfsmanna og starfsmanna á almennum vinnumarkaði verði jafnaður - munurinn sé orðinn um það bil 17 prósent og það opinberum starfsmönnum í óhag. Þetta fellst Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags á Húsavík og einn stjórnarmanna Starfsgreinasambandsins, ekki á og kallar þessar fullyrðingar BSRB áróður. „Ég hef bara gert formlegar athugasemdir við það að BSRB skuli halda því fram að launakjör félagsmanna innan BSRB hafi þróast með öðrum hætti en á almenna vinnumarkaðinum, það er að segja að það hafi verið mun minni launahækkanir þar en á almenna vinnumarkaðinum, sem að er bara ekki rétt,“ segir Aðalsteinn Skaðleg orðræða fyrir láglaunafólk Hann segir að það megi vel vera að launamunurinn sé svo mikill ef að best launuðu störfin eru borin saman en þegar kemur að láglaunafólki, sem er í miklum meirihluta er launamunurinn opinberum starfsmönnum í vil. „Það er þess vegna sem ég er að vekja athygli á þessu að mér finnst þetta skaða mitt fólk og þarna er verið að halda að fólki röngum upplýsingum. Og ég vil bara koma því á framfæri að þarna er ég að tala um stóra hópa ferðaþjónustunnar, fiskvinnslufólk, kjötvinnslufólk, ræstingafólk og bílstjóra og fleiri. Og ég er bara að koma þessu á framfæri að þetta er ekki rétt,“ segir Aðalsteinn. Þessir hópar fái flestir grunnlaun á bilinu 330 þúsund krónum upp í 350 þúsund krónur á almennum vinnumarkaði en bilið er 371 þúsund til 472 þúsund krónur hjá opinberum starfsmönnum. Vill Aðalsteinn þá ekki sjá laun opinberra starfsmanna hækka? „Jú, það er bara þannig að það eru margir opinberir starfsmenn sem eiga rétt á hækkunum að mínu mati. Það eru margir opinberir starfsmenn sem eru illa launaðir og það er bara þannig en staðan er bara því miður miklu verri hjá almennu verkafólki heldur en hjá opinberum starfsmönnum, það er bara þannig.“
Vinnumarkaður Kjaramál Norðurþing Stéttarfélög Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Fleiri fréttir Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Sjá meira