Áhyggjufullir foreldrar mótmæltu í Ráðhúsinu

Um 30 foreldrar voru á svæðinu.
Um 30 foreldrar voru á svæðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Áhyggjufullir foreldrar mótmæltu úrræðaleysi í leikskólamálum í Reykjavík fyrir fund borgarráðs í morgun. Stór hluti barna verður áfram vera á biðlista eftir plássi á leikskóla eftir að fyrstu innritun lýkur. 

Í svari við fyrirspurn mbl.is kemur fram að 2.032 börn frá sex mánaða aldri á biðlista. Þar af eru 782 börn 18 mánaða og eldri. 225 börn á listanum eru í vistun á sjálfstætt starfandi leikskólum en hafa sótt um vist á borgarreknum leikskóla. Samkvæmt Reykjavíkurborg munu 1.178 börn fá pláss í borgarreknum leikskólum í þessari fyrstu innritunarlotu.

Foreldrar mótmæltu í ráðhúsinu.
Foreldrar mótmæltu í ráðhúsinu.

Um 30 foreldrar voru samankomin fyrir borgarráðsfundinn í morgun. Thelma Björk Wilson foreldri í Vesturbæ, þar sem neyðin er einna brýnust, segir að lítið hafi verið um svör þegar borgarfulltrúar meirihlutans ræddu stuttlega við þá fyrir fundinn. 

Börn að leik í ráðhúsinu.
Börn að leik í ráðhúsinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hún segir ánægjulegt hvernig foreldrar sem hópur standi saman í málinu. „Það er ekki nóg að koma með einhver loforð og segjast ætla að bæta hlutina en gera svo ekkert. Það þarf að sýna fram á einhverja framvindu í þessum málum. Að koma með einhverjar mótvægisaðgerðir hvort sem það er til tímabundnar á meðan ástandið er svona eða til langs tíma,“ segir Thelma.   

Hún segir að önnur mótmæli séu boðuð á þriðjudag þegar borgarstjórn kemur saman. 

Margir foreldar eru áhyggjufullir.
Margir foreldar eru áhyggjufullir. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert