Boðar alvarleg átök á vinnumarkaði verði lífskjarasamningum sagt upp Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 24. september 2020 13:00 Aðalsteinn Árni Baldursson formaður stéttarfélagsins Framsýnar Vísir/Arnar
Formaður stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík boðar alvarleg átök á vinnumarkaði fari svo að forsendur lífskjarasamningana verði metnar brostnar. Mörg fyrirtæki gangi vel þrátt fyrir áföll í ferðaþjónustugeiranum. Fjármálaráðherra sagði í fréttum okkar í gær að efnahagslegar forsendur fyrir áframhaldandi kjarabata væru brostnar. Samtök atvinnulífsins hafa einnig gefið út að vegna áhrifa af kórónuveirufaraldrinum séu ekki forsendur fyrir boðuðum launahækkunum í lífskjarasamningi. Aðalsteinn Árni Baldursson formaður stéttarfélagsins Framsýnar segir gríðarlega mikilvægt að lífskjarasamningurinn standi. „Ég er ekki sáttur við ummæli fjármálaráðherra í fréttum ykkar í gær. Fyrir þessa ríkisstjórn er afar mikilvægt að það verði haldið í þennan lífskjarasamning og ríkisstjórnin standi við þau loforð sem gefin voru þegar samningurinn var undirritaður. Þá létu forystumenn ríkisstjórnarinnar mynda sig alls staðar og voru alls staðar í fjölmiðlum og sögðu hvað þetta væri flottur samningur, hann væri til framtíðar. Stjórnvöld verða að standa við sitt. Ef Samtök atvinnulífsins meta það svo að lífskjarasamningurinn sé brostinn og segja honum upp þá kemur það verst út fyrir íslenskt atvinnulíf og ef það verður gert erum við fyrst að sjá alvarleg átök á íslenskum vinnumarkaði,“ segir Aðalsteinn. Hann segir vissulega að ferðaþjónustan hafi orðið fyrir miklum áföllum en það gildi ekki um allan vinnumarkaðinn. „Ég geri ekkert lítið úr því að einhver fyrirtæki hafi ekki efni á launahækkunum en sjávarútvegurinn, matvælageirinn og ýmsar þjónustugeirann þar eru menn enn ekkert að kvarta.“ Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR er á sama máli. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.Vísir/Arnar „Við vitum að mörg fyrirtæki standa illa. Sum standa svo illa að þau hafa hætt starfsemi svo það eru engir starfsmenn til að hækka laun við. Svo eru það sum fyrirtæki sem græða minna en áður og önnur fyrirtæki sem standa mjög vel. En við vitum það t.d. að í verslun hef orðið metvelta og fyrirtæki standa almennt vel undir þessum hækkunum. Ég hafna þessum málflutningi að fyrirtækin geti ekki ráðið við þessar launahækkanir,“ segir Ragnar. Forsendunefnd lífskjarasamningana á fund í dag um hvort forsendur þeirra séu brostnar eður ei en nefndin þarf að ná niðurstöðu fyrir mánaðarmót.
Vinnumarkaður Efnahagsmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Alþingi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Segir að launahækkanir verði aldrei snertar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að þær launahækkanir sem framundan eru í tengslum við Lífskjarasamninginn verði aldrei snertar. 24. september 2020 08:58 „Þetta gæti endað með ósköpum“ Fjármálaráðherra segir efnahagslegar forsendur fyrir áframhaldandi kjarabata launþega foknar út í veður og vind, kanna þurfi hvort fresta þurfi launahækkunum. Formaður VR segir að ef það gerist verði því svarað af hörku sem ekki hafi sést áður. 23. september 2020 20:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Erlent Fleiri fréttir „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Sjá meira
Segir að launahækkanir verði aldrei snertar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að þær launahækkanir sem framundan eru í tengslum við Lífskjarasamninginn verði aldrei snertar. 24. september 2020 08:58
„Þetta gæti endað með ósköpum“ Fjármálaráðherra segir efnahagslegar forsendur fyrir áframhaldandi kjarabata launþega foknar út í veður og vind, kanna þurfi hvort fresta þurfi launahækkunum. Formaður VR segir að ef það gerist verði því svarað af hörku sem ekki hafi sést áður. 23. september 2020 20:00