Hvetur fyrirtæki til að hagræða frekar en að grípa til hækkana Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 24. janúar 2022 19:16 ASÍ gefur lítið fyrir áhyggjur stórfyrirtækja um yfirvofandi verðhækkanir, enda séu þau sannarlega ekki á flæðiskeri stödd, og geti vel hagrætt fremur en að velta hækkunum út í verðlagið. Heildsölur og stærri fyrirtæki hafa lýst því yfir að hækkanir muni dynja yfir á næstu vikum.
Talsverðar verðhækkanir hafa orðið í heimsfaraldrinum, en samkvæmt tölum frá verðlagseftirliti ASÍ hefur grænmeti hækkað um allt að 5,7 prósent á tveggja ára tímabili, þ.e frá 2019-2021. Innfluttar mat- og drykkjarvörur hafa hækkað um 7,6 prósent, og innlendar mat- og drykkjarvörur um 9,7 prósent, svo dæmi séu tekin. Fram undan eru enn frekari hækkanir en stórar heildsölur hér á landi hafa lýst því að viðlíkar hækkanir erlendis frá hafi ekki sést, og þá telja Hagar að hækkanirnar muni dynja yfir á næstu vikum sem muni skila sér út í verðlagið. „Það er áhugavert að fylgjast með þessu, að fylgjast með forstjórum stórra verslana og heildsala stíga ítrekað fram í fjölmiðlum og lýsa því yfir að verðhækkanirnar séu óumflýjanlegar,“ segir Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. „Þetta eru fyrirtæki sem eru á samkeppnismarkaði og maður getur ekki annað en velt því fyrir sér hversu mikil samkeppni sé á markaði þar sem slík háttsemi tíðkast og af hverju vel rekin fyrirtæki leita ekki leiða til þess að hagræða í stað þess að útlista um áform sín um verðhækkanir.“ Þannig vísar hún til þess að þeir aðilar sem boðað hafi verðhækkanir velti allir milljörðum á hverju ári og hagnist samhliða því. Ekkert þessara fyrirtækja sé á flæðiskeri statt. „Það er nauðsynlegt að taka fram að innflutningsverð er einungis einn af mörgum þáttum sem mynda þetta lokaverð til neytenda. Og ýmsir aðrir þættir í rekstrarumhverfi fyrirtækja hafa breyst og til hins betra í mörgum tilfellum. Þrátt fyrir að innkaupsverð hækki eitthvað þá á það ekki að skila sér nema að litlu leyti út í verðlag til neytanda. Og þyrfti í raun og veru ekki að gera það vegna breytinga á öðrum rekstrarþáttum,“ segir Auður. Verðhækkanir séu ekki réttlætanlegar á þessum tímapunkti. „Við teljum ekki tilefni til verðhækkana og það er ekkert sem myndi útskýra slíkar verðhækkanir miðað við hversu góð afkoma er hjá þessum fyrirtækjum.“
Neytendur Verðlag Verslun Tengdar fréttir Heildsölur hafa ekki séð viðlíka hækkanir á einu bretti Stærstu heildsölur landsins hafa ekki séð á eins víðtækar og skarpar verðhækkanir, og þær sem hafa gengið yfir á síðustu vikum. Fyrirtækin koma litlum vörnum við og telja að hækkanir frá erlendum framleiðendum og birgjum eigi eftir að seytla inn í smásöluverð á næstu mánuðum. 21. janúar 2022 07:00 Við höfum aðeins séð toppinn á ísjakanum, segir forstjóri Innness um verðhækkanir Magnús Óli Ólafsson, forstjóri heildverslunarinnar Innnes, segir að búast megi við verulegum hækkunum á verðlagi eftir því sem áhrif hækkana frá erlendum birgjum brjótast fram á smásölumarkaði. Honum kæmi ekki á óvart ef verð innfluttra vara myndi hækka um 10 til 12 prósent á næstu mánuðum. 20. janúar 2022 07:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fara fram á farbann Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Fleiri fréttir Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt Sjá meira
Heildsölur hafa ekki séð viðlíka hækkanir á einu bretti Stærstu heildsölur landsins hafa ekki séð á eins víðtækar og skarpar verðhækkanir, og þær sem hafa gengið yfir á síðustu vikum. Fyrirtækin koma litlum vörnum við og telja að hækkanir frá erlendum framleiðendum og birgjum eigi eftir að seytla inn í smásöluverð á næstu mánuðum. 21. janúar 2022 07:00
Við höfum aðeins séð toppinn á ísjakanum, segir forstjóri Innness um verðhækkanir Magnús Óli Ólafsson, forstjóri heildverslunarinnar Innnes, segir að búast megi við verulegum hækkunum á verðlagi eftir því sem áhrif hækkana frá erlendum birgjum brjótast fram á smásölumarkaði. Honum kæmi ekki á óvart ef verð innfluttra vara myndi hækka um 10 til 12 prósent á næstu mánuðum. 20. janúar 2022 07:01