Frá Atalanta til Vals?

Arnar Grétarsson tók við stjórnartaumunum hjá Val síðasta haust.
Arnar Grétarsson tók við stjórnartaumunum hjá Val síðasta haust. Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson

Knattspyrnumaðurinn Óliver Steinar Guðmundsson er nálægt því að ganga til liðs við Val í Bestu deildinni.

Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Óliver Steinar, sem er 18 ára gamall, er samningsbundinn Atalanta á Ítalíu.

Miðjumaðurinn er uppalinn hjá Haukum í Hafnarfirði en hann gekk til liðs við Atalanta sumarið 2021.

Hann lék einn leik með Haukum í 2. deildinni, sumarið 2020, og þá á hann að baki þrjá landsleiki með U19-ára landsliði Ísland.

Í frétt fótbolta.net kemur einnig fram að Valsmenn séu einnig að reyna að fá Kristófer Jónsson úr láni frá Venezia, sem og að félagið sé að reyna að fá Hlyn Frey Karlsson frá Bologna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert