Messi á skotskónum í sigri heimsmeistaranna

Lionel Messi og Thiago Almada (nr. 16) skoruðu mörk Argentínu …
Lionel Messi og Thiago Almada (nr. 16) skoruðu mörk Argentínu í nótt. AFP/Juan Mabromata

Lionel Messi skoraði sitt 99. mark fyrir argentínska landsliðið í knattspyrnu þegar það hafði betur gegn Panama, 2:0, í vináttulandsleik í Argentínu í nótt.

Markalaust var í leikhléi en tólf mínútum fyrir leikslok kom varamaðurinn Thiago Almada, leikmaður Atlanta United í Bandaríkjunum, Argentínu á bragðið með sínu fyrsta landsliðsmarki í sínum þriðja landsleik.

Skoraði hann eftir að hafa fylgt eftir aukaspyrnu Messi sem hafnaði í þverslánni.

Almada vakti athygli á dögunum fyrir stórkostlegt aukaspyrnumark sem hann skoraði í leik með Atlanta í bandarísku MLS-deildinni, sem sjá má hér:

Messi innsiglaði svo sigurinn einni mínútu fyrir leikslok með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu.

Mörkin 99 hefur hann skorað í 173 landsleikjum.

Messi hefur nú skorað alls 800 mörk á ferli sínum með félagsliðum og landsliði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert