Biðst afsökunar á garðveislunni

Boris Johnson biðst afsökunnar á hegðun sinni.
Boris Johnson biðst afsökunnar á hegðun sinni. AFP

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, biðst afsökunar á að hafa farið í garðveislu sem var haldin í Down­ingstræti þegar strangar samkomutamark­an­ir voru í gildi í Bretlandi. 

Sagði hann að garðveislan hafi verið vinnuviðburður en baðst þrátt fyrir það innlegrar afsökunar.

Keir Starmer gefur lítið fyrir afsökunarbeiðni Johnson.
Keir Starmer gefur lítið fyrir afsökunarbeiðni Johnson. AFP

Hyggst ekki segja af sér

Stjórnarandstaðan hefur krafist þess að Johnson segi af sér. Johnson hyggst ekki gera það.

Keir Starmer, leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði afsökunarbeiðnina gagnslausa og hæddist að Johnson fyrir að hafa þagað svona lengi eftir mánaða svik og blekkingar. „Ætlar hann nú að gera það sem hann ætti að gera og segja af sér?" sagði Starmer.

Nokkrir flokksfélagar Johnson vilja einnig að hann segi af sér en hann hefur hvatt þá til að bíða eftir niðurstöðu rannsóknar á málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert