Gefur fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar falleinkunn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. október 2020 12:05 Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB. Vísir/Vilhelm
BSRB segir nær öll þau störf sem skapa eigi með fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar vera hefðbundin karlastörf. Því sé fyrirsjáanlegt að átakið muni auka á kynjamisrétti. BSRB gerir alvarlegar athugasemdir við þetta og kallar eftir því að ráðist verði í uppbyggingu innviða á borð við umönnun og þjónustu við börn, fatlað fólk og aldraða. Þetta kemur fram í umsögn BSRB um fjárlagafrumvarpið og tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir næstu fimm ár, sem send hefur verið Alþingi. Þar segir að um 85 prósent þeirra starfa sem verði til með átakinu verði hefðbundin karlastörf. „Niðurstaðan er að fjárfestingar- og uppbyggingarátak ríkisstjórnarinnar fær falleinkun út frá jafnréttissjónarmiðum,“ segir í umsögninni. Ríkisstjórnin á ríkisráðsfundi á Bessastöðum.Vísir/Vilhelm BSRB bendir á að á sama tíma og ráðast eigi í átak þar sem mikill meirihluti þeirra starfa sem skapast séu hefðbundin karlastörf sæti ýmsir málaflokkar hins opinbera þar sem konur starfa í meirihluta aðhaldskröfu. Þetta þýði að álagið á konur sem starfa í opinberri þjónustu muni aukast samhliða aukinni ólaunaðri vinnu kvenna vegna skertrar þjónustu við börn, aldraða og sjúka vegna sóttvarnaraðgerða. „Fljótlegasta leiðin til atvinnusköpunar fyrir konur er að auka framlög til opinberrar þjónustu,“ segir einnig í umsögninni. „Þetta er líka skynsamleg leið. Nýleg rannsókn sem gerð var í sjö aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) sýnir að fjárfestingar í umönnun og velferð, svo sem öldrunarþjónustu, heilbrigðiskerfi og leikskólum, séu ekki síður árangursríkar og jafnvel vænlegri til árangurs en fjárfesting í starfsgreinum þar sem meirihluti starfsfólks eru karlar svo sem í opinberum framkvæmdum eða byggingariðnaði. Ávinningurinn er meiri þar sem fleiri störf skapast því nánast allur kostnaður umönnunar felst í launakostnaði öfugt við framkvæmdir þar sem mikið fjármagn fer í aðföng. Fjárfesting í umönnun og velferð leiðir til hærra atvinnustigs og eykur eftirspurn eftir vörum og þjónustu fyrirtækja sem aftur eykur tekjur ríkissjóðs.“ Ófjármögnuðum skattalækkunum mótmælt Í umsögn BSRB er einnig gagnrýnt að stjórnvöld ráðist í ófjármagnaðar skattalækkanir sem ekki tengjast heimsfaraldrinum og ítrekar bandalagið mótmæli sín við þessari stefnu. Þá hafnar BSRB alfarið þeirri stefnu sem endurspeglast í fjármálaáætluninni, þar sem gert er ráð fyrir því að umfang ríkisrekstrar í hagkerfinu verði minnkað frá árinu 2025 miðað 2019 með niðurskurði á útgjöldum og veikingu tekjustofna. BSRB kallar einnig eftir því að tekjustofnar sveitarfélaga verði efldir. Þá er því fagnað í umsögn bandalagsins að áfram eigi að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað í heilbrigðisþjónustunni og draga úr greiðsluþátttöku almennings vegna heilbrigðisþjónustu. Sérlega ánægjulegt er að til standi að fara í átak til heilsueflingar í heimabyggð vegna heimsfaraldursins. Brúa þarf umönnunarbilið Í umsögn BSRB er því fagnað að fæðingarorlof verði lengt í tólf mánuði og kallað eftir því að ríki og sveitarfélög vinni saman að því að brúa umönnunarbilið, bilið frá því fæðingarorlofi lýkur þar til barn kemst í dagvistunarúrræði. BSRB gerir einnig alvarlegar athugasemdir við það í umsögn sinni að ekki sé lögð ríkari áhersla á aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Fleiri fréttir Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Sjá meira