Óli Stef segir að það sé „eitthvað í loftinu“ hjá íslenska liðinu fyrir EM í handbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2022 08:01 Ólafur Stefánsson skorar fyrir íslenska landsliðið á síðasta stórmóti sínu sem voru Ólympíuleikarnir í London 2012. Getty/Jeff Gross/ Ólafur Stefánsson, fyrrum fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, er bjartsýnn fyrir gengi íslenska handboltalandsliðsins á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu en fyrsti leikur strákanna okkar er á föstudaginn.
Ólafur verður sérfræðingur í EM stofu Ríkisútvarpsins á meðan mótinu stendur og leysir þar af Arnar Pétursson. Ólafur verður þar við hlið Loga Geirssonar en þeir voru hlið við hlið í íslenska landsliðinu þegar það vann silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons á Evrópumótinu í Austurríki 2010. En hvernig leggst þetta Evrópumót í besta handboltamann Íslands frá upphafi. „Bara vel. Fólkið er aðeins að finna tóninn í leikmönnum og ég held að það sé eitthvað í loftinu,“ sagði Ólafur í viðtali á vef RÚV í tilefni að hann var tilkynntur sem nýr sérfræðingur EM stofunnar. „Ég held að ég tali fyrir fleiri en sjálfan mig þegar ég segi að við höfum ekki verið góðir í fyrra. Maður finnur það að liðið vill meira og þá þýðir það náttúrulega augljóslega að byrja á því að komast upp úr riðlinum og það væri frábært ef þeim tækist að taka stig með,“ sagði Ólafur. „Fyrsta og aðalmálið er að vinna Portúgal og byrja þar. Það er alveg lykilleikur,“ sagði Ólafur. Margir leikmenn íslenska liðsins eru meðal markahæstu leikmanna í bestu deild í heimi menn eins og Ómar Ingi Magnússon, Bjarki Már Elísson og Viggó Kristjánsson. „Menn eru að skora þarna úti í bestu deildinni og augljóslega förum við að setja þá kröfu að þeir geri slíkt hið sama þegar þeir klæðast bláa búningnum. Aron (Pálmarsson) er kominn aftur og þetta lítur nokkuð vel út,“ sagði Ólafur. Það má finna allt viðtalið við Ólaf með því að smella hér.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Enski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti Gunnar um að mæta dóttur sinni: „Hélt langmest með henni af öllum inn á vellinum“ Sport Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir Körfubolti „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Handbolti „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ Körfubolti Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Körfubolti Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki Fótbolti Fleiri fréttir „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti