Sádi-Aröbum ekki hleypt inn á HM kvenna í fótbolta þrátt fyrir gylliboð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2023 10:32 Hin bandaríska Alex Morgan var ein af þeim sem talaði gegn því að Sádarnir fengju að styrkja HM kvenna í fótbolta í ár. Getty/Mikoaj Barbanell Alþjóða knattspyrnusambandið hætti við fáránleikann og lét undan pressunni þegar sambandið ákvað að taka ekki tilboði frá Sádi-Arabíu um að vera einn af styrktaraðilum heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta í sumar.
Gianni Infantino, forseti FIFA, gaf þetta út í gær en lokaði samt ekki um leið á það að Sádi-Arabar muni styrkja kvennafótboltann í næstu framtíð. FIFA is expected to drop plans to make Visit Saudi a sponsor for the 2023 Women s World Cup in Australia and New Zealand following a backlash led by women s players.More from @mjshrimper— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) March 14, 2023 Það urðu mjög hörð viðbrögð við því þegar fréttist að Sádi-Arabía yrði einn af styrktaraðilunum á HM kvenna 2023 enda landið þekkt fyrir allt annað en að vilja upphefja eða hjálpa konum sínum að ná frama í sínu lífi. Þvert á móti og aðeins fyrir nokkrum árum máttu konur ekki einu sinni koma inn á knattspyrnuvelli eða keyra sjálfar á völlinn. Konur ráða hreinlega ekki yfir lífi sínu heldur þurfa þær að lúta forsjá karlmanns. Visit Saudi, ferðamannastofa landsins, ætlaði að auka sýnileika sinn á meðan keppninni stóð sem og vinna í breyttri ímynd og borga FIFA fyrir það væna upphæð. Knattspyrnukonur heimsins voru sérstaklega óánægðar með þessar fréttir enda þær sjálfar réttminni einstaklingar þegar þær heimsækja Sádi-Arabíu. Infantino bauð hins vegar upp á dæmigerða skýringu frá sér þegar kemur að því að verja lönd sem eru uppvís af ítrekuðu mannréttindabrotum. Fantastic news! After the public backlash, Saudi Arabia won't sponsor the upcoming women's World Cup in Australia & NZThanks to the athletes & @FootballAUS for speaking up! @hrwhttps://t.co/fRh0USl046— Sophie McNeill (@Sophiemcneill) March 17, 2023 „Það voru viðræður í gangi við Visit Saudi en við náðum ekki samkomulagi á endanum. Þetta var því stormur í vatnsglasi,“ sagði Gianni Infantino eftir að hann var endurkjörinn forseti FIFA án mótframboðs. „FIFA eru samt samtök með 211 löndum. Það er ekkert að því að taka við styrkjum frá Sádi-Arabíu, Kína, Bandaríkjunum, Brasilíu eða Indlandi,“ sagði Infantino. Hann fór síðan í sína venjubundnu söguskýringu. „Þegar kemur að Ástralíu þá eru þeir í viðskiptum við Sádí Arabíu á hverju ári sem eru 1,5 milljarða dollara virði. Þá er ekkert vandamál,“ sagði Infantino. Ástralía heldur HM ásamt Nýja-Sjálandi og báðir gestgjafarnir voru á móti því að Sádarnir kæmu inn. Það má þó ekki líta fram hjá því að þetta er á réttri leið þótt hægt gangi. Í júní árið 2018 var akstursbanni kvenna aflétt og í ágúst 2019 fengu konur aukið ferðafrelsi án samþykkis karlkyns forráðamanns og rétt til að skrá hjónaband, skilnað, fæðingu og dauðsfall. Ekki eru þetta eintómir smásigrar því að um sama leyti og eftir að akstursbanni kvenna var aflétt voru helstu baráttukonur fyrir réttindum kvenna í Sádi-Arabíu handteknar fyrir baráttu sína. U.S. women's national team forward Alex Morgan spoke out against #FIFA possibly bringing on Visit Saudi -- the official tourism authority for the kingdom of Saudi Arabia -- as a sponsor of the 2023 #FIFAWomensWorldCuphttps://t.co/2OGeXWmq3T#football #ESPNCaribbean pic.twitter.com/dVqGy3fRkf— ESPN Caribbean (@ESPN_Caribbean) February 10, 2023
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ Fótbolti „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Körfubolti Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Fótbolti Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Fótbolti Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Körfubolti Leverkusen neitar að tapa Fótbolti Fleiri fréttir Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Læknar sögðu Arnór heppinn að ekki skyldi hafa farið verr Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld Skulda Ronaldo meira en milljarð og hafa kannski ekki efni á Alberti „Er eiginlega ennþá í sjokki“ Romário tekur fram skóna til að spila með syninum „Þetta er töfrum líkast“ „Ég get ekki fundið réttu orðin“ Real sló meistarana úr leik eftir vítakeppni Kimmich tryggði Bayern sæti í undanúrslitum Öruggt hjá Chelsea sem jafnaði City á toppnum Þrenna frá Maríu þegar Fortuna flaug í bikarúrslit Þróttarar kjósa um nýtt merki Forseti Frakklands setur pressu á Real Madrid Arteta segir að sigur á Bayern myndi breyta Arsenal Sjá meira