Ómögulegt að spá fyrir um framhaldið en „fólk getur verið rólegt heima hjá sér“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. febrúar 2021 18:19 Vísindamenn spá ekki, þeir hanna sviðsmyndir, segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Vísir „Málið var nú fyrst og fremst að bera saman bækur, þannig að allir væru á sömu blaðsíðu,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur um fund Vísindamannaráðs almannavarna sem lauk síðdegis.
Páll er dulur um niðurstöðu fundarins og segir tilkynningar að vænta. Spurður að því hvernig hann les í stöðu mála segir hann fátt nýtt að frétta; um sé að ræða framhald á umbrotum sem hófust í lok árs 2019, sem virðist heldur vera að aukast. Orsök skjálftanna séu flekahreyfingar en hrinan núna sé raunar dálítið merkileg. „Þetta gengur í svona bylgjum, það bresta á hrinur og þær haga sér með svolítið mismunandi hætti,“ segir Páll. „Þessi fyrsta byrjar með tiltölulega stórum skjálfta og síðan koma strax í kjölfarið á honum svokallaðir „gikkskjálftar“ í talsverðri fjarlægð jafnvel. Hann hleypir þannig af stað öðrum skjálftum. Síðan róast nú frekar næsta dag og fram á morgun á föstudag en þá dynur yfir annar svona skjálfti og í kjölfarið á honum koma líka margir skjálftar en þeir eru meira eins og eftirskjálftar.“ Sviðsmyndirnar spanna allan skalann Spurður um möguleg eldsumbrot svara Páll einfaldlega: „Það er ekkert eldgos í þessu ennþá.“ Í fyrra hafi menn merkt kvikuhreyfingar en ekkert bendi til þess nú. Hann segist ómögulega vilja spá fyrir um framhaldið. „Nei, við reynum nú að spá ekki neitt nema við vitum eitthvað. Það sem er stundað er að setja upp sviðsmyndir því við viljum ógjarnan að þetta komi aftan að okkur; að eitthvað komi okkur á óvart,“ segir Páll. Sviðsmyndirnar spanna allan skalann, segir hann. „Þetta gæti hugsanlega hætt á morgun en miðað við að þetta hefur nú frekar verið að sækja í sig veðrið er það ekki líklegasta sviðsmyndin í safninu. Ein er að virknin dreifist út til austurs en þar er efniviður í stærri skjálfta.“ Páll ítrekar að fólk þurfi ekki að óttast þann möguleika, það er að segja stóran skjálfta nær höfuðborginni. „Við erum í raun bara að tala um skjálfta eins og Reykvíkingar upplifðu 1930 og 1970, sem ollu tjóni en það hrundu ekki hús eða svoleiðis. Það varð tjón á innanstokksmunum. Þetta eru ekki einhverjir hamfaraskjálftar. Það er sjálfsagt að láta þau skilaboð berast út í þjóðfélagið. Það er ekkert að hafa áhyggjur af og fólk getur verið rólegt heima hjá sér.“
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Reykjanesbær Grindavík Vogar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Mikið vesen á veitingastöðum borgarinnar Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Erlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Fleiri fréttir Mikið vesen á veitingastöðum borgarinnar Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Sjá meira