Halda hátíðina í miðju landsliðsverkefni kvenna: „Veit ekki hver f-i þessu upp“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2021 12:31 Norska knattspyrnukonan Ada Hegerberg var fyrsta konan til að fá Gullhnöttinn og hátíðin var stór stund fyrir hana. Getty/Aurelien Meunier Á mánudaginn kemur mun Gullhnötturinn vera afhentur til besta knattspyrnufólks heims. Karlarnir áttu þetta svið lengi einir en síðustu ár hafa konurnar fengið hinn svokallaða Ballon d’Or líka.
Það sem vekur athygli með verðlaunahátíðina að þessu sinni er að hún er haldin á versta tíma fyrir knattspyrnukonurnar. Jú hátíðin er haldin á tíma þegar það er nokkuð ljóst að engin af knattspyrnukonunum verður í salnum. Nilla Fischer och Magdalena Eriksson kritiska att de missar galan https://t.co/7M21LuQYel— Sportbladet (@sportbladet) November 23, 2021 Á mánudaginn eru þær sem koma til greina nefnilega flestar uppteknar í landsliðsverkefnum enda landsleikjagluggi kvennaliðanna í gangi. Sænska landsliðskonan Nilla Fischer var mjög ósátt með þetta í viðtali við Sportbladet. „Ég veit ekki hver f-i þessu upp en þetta er viðburður sem við allar eigum að geta mætt á,“ sagði Nilla Fischer. Magdalena Eriksson er fyrirliði Chelsea og ein þeirra tuttugu knattspyrnukvenna sem er tilnefnd til verðlaunanna. Athöfnin fer fram á mánudaginn í París en kvöldið eftir er hún að spila með sænska landsliðinu á móti Slóvakíu í undankeppni HM. „Mér finnst það mjög óheppilegt að þeim hafi ekki tekist að finna tímapunkt fyrir hátíðina sem hentar dagatali beggja kynja. Sú sem vinnur Gullhnöttinn fær ekki tækifæri til að vera á staðnum og taka á móti honum. Það er mjög leiðinlegt því þetta er stór stund á ferli hvers leikmanns,“ sagði Magdalena Eriksson. Þetta er í þriðja sinn sem konurnar fá Gullhnöttinn frá France Football. „Auðvitað er ég þreytt á því að hlutirnir séu alltaf svona og það er engin vafi á því að þeir ættu að finna stað og stund svo að konurnar geti mætt líka, sagði Nilla Fischer en sænska landsliðkonan vill samt horfa jákvætt fram á veginn. Hún hefur verið lengi í fremstu röð og hefur á þeim tíma orðið vitni af miklum breytingum. „Þetta verður örugglega betra í framtíðinni. Stundum förum við tvö skref fram á við en þurfum síðan að taka eitt skref til baka. Allar breytingar taka tíma. Við erum samt á góðri leið og það má sjá á þeim breytingum sem hafa orðið hjá félögunum í Evrópu og á síðustu stórmótum sem hafa öll verið frábær. Við erum því á leið í rétt átt,“ sagði Fischer.
Fótbolti Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Sigríður Á. Andersen varð Íslandsmeistari Sport Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Enski boltinn Leik lokið: KA-KR 1-1 | Smit stelur fyrirsögnunum enn og aftur Íslenski boltinn Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Körfubolti Segir „mjög líklegt“ að Guðlaug Edda komist á ÓL í París í sumar Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Fleiri fréttir „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Leik lokið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð Sverrir Ingi lagði upp sigumarkið sem galopnaði toppbaráttuna Í beinni: HK - Víkingur | Meistararnir mæta í Kórinn Í beinni: Fram - Fylkir | Ferskir Frammarar fá heimsókn úr Árbænum Samherjar Alberts náðu í stig í Mílanó Leik lokið: KA-KR 1-1 | Smit stelur fyrirsögnunum enn og aftur Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Hilmir Rafn kominn á blað í Noregi Sjáðu frábært mark hjá Arnóri Ingva sem dugði þó skammt Langt hlé gert á leik hjá Guðrúnu vegna mikillar rigningar Jón Dagur lagði upp mark Birkir skoraði fyrir Brescia Katla tryggði Kristianstad sigur Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Andri Lucas skoraði og Andri Fannar fagnaði sigri á toppliðinu PSV Eindhoven hollenskur meistari í fyrsta sinn í sex ár Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Sjáðu Andra Rúnar opna reikninginn og mörkin sem færðu FH sigur Messi með ótrúlegt stoðsendingmet í MLS deildinni í nótt Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Sjá meira