Á laugardaginn greindust 80 innanlands með Covid-19 og 10 á landamærunum, samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum til fjölmiðla, en covid.is síðan verður uppfærð á morgun.
Alls voru 39 í sóttkví.
Í dag eru 1.389 í einangrun og 1.865 í sóttkví. Tólf hafa greinst með Omicron-afbrigðið á Íslandi.