Kristian og Kristófer lögðu báðir upp

Kristófer Ingi Kristinsson í treyju Venlo.
Kristófer Ingi Kristinsson í treyju Venlo. Ljósmynd/VVV

Kristian Nökkvi Hlynsson og Kristófer Ingi Kristinsson létu báðir vel að sér kveða með liðum sínum í hollensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Kristian Nökkvi lék allan leikinn í liði Jong Ajax sem mátti sætta sig við 1:2-tap fyrir Roda á heimavelli.

Hann lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Donny Warmerdam á 24. mínútu áður en gestirnir sneru taflinu við.

Kristófer Ingi var þá í byrjunarliði Venlo sem vann gömlu félaga hans í Jong PSV 2:1 á útivelli.

Jong PSV náði forystunni en Kristófer Ingi lagði upp jöfnunarmark Venlo eftir klukkutíma leik.

Hann fór af velli á 72. mínútu og á 90. mínútu skoraði Venlo sigurmarkið.

Venlo er í fimmta sæti deildarinnar með 35 stig en Jong Ajax er í því fimmtánda með 23 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert