Parkland-fjöldamorðinginn játar sekt Þorgils Jónsson skrifar 20. október 2021 16:02 Nikolas Cruz kom fyrir dóm í dag og játaði sig sekan um að hafa myrt sautján manns í miðskóla í Parkland í Flórída. Nikolas Cruz játaði í dag fyrir dómi að hafa myrt sautján manns og sært jafnmarga í miðskóla í Parkland í Flórída árið 2018. Hann baðst um leið afsökunar á gjörðum sínum.
Cruz hafði ári áður verið rekinn úr Marjory Stoneman Douglas-skólanum fyrir áralangar hótanir og ofbeldi þegar hann mætti einn daginn með AR-15 riffil og hóf skothríð sem lauk með því að fjórtán nemendur og þrír starfsmenn skólans lágu í valnum. Ódæðið vakti upp mikla umræðu um skotvopnalöggjöf Bandaríkjanna, en hafði – sem fyrr – lítil áhrif á stöðu þeirra mála. Mörg af skólasystkinum Cruz stigu fram sem baráttufólk fyrir hertri löggjöf. Cruz er nú fyrir dómi þar sem leitast er við að skera úr um sakhæfi hans. Verði hann álitinn sakhæfur verður málinu vísað til kviðdóms sem mun ákveða hvort hann verði dæmdur til lífstíðarfangelsis eða til dauða. Yfirlýsing hans um sekt er talin vera útspil verjenda til að sýna fram á að hann hafi tekið ábyrgð á eigin gerðum, í von um að sleppa við dauðadóm. Tugir aðstandenda fórnarlamba Cruz voru viðstödd réttarhaldið í dag. Margir hristu höfuð sitt eða felldu tár þegar Cruz lýsti yfir sekt sinni. Afsökunarbeiðnin féll almennt í grýttan jarðveg. „Í dag horfðum við upp á kaldrifjaðan og yfirvegaðan morðingja játa að hafa banað Ginu, dóttur minni og sextán öðrum saklausum fórnarlömbum í skólanum þeirra“, hefur AP eftir Tony Monalto, einum viðstaddra. „Játning hans er fyrsta skrefið í þessu ferli, en það mun ekkert breytast fyrir fjölskyldu mína. Klára, fallega dóttir okkar hún Gina, sem við elskuðum svo mikið, er horfin á braut á meðan morðingi hennar fær enn að njóta þess að lifa í fangelsi.“
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Parkland-morðinginn mætir fyrir dóm Mál Nikolas Cruz, sem játað hefur á sig fjöldamorð í miðskóla í Parkland í Flórída fyrir rúmum þremur árum, verður tekið fyrir í dómsal í dag. 15. október 2021 15:16 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Fleiri fréttir Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Sjá meira
Parkland-morðinginn mætir fyrir dóm Mál Nikolas Cruz, sem játað hefur á sig fjöldamorð í miðskóla í Parkland í Flórída fyrir rúmum þremur árum, verður tekið fyrir í dómsal í dag. 15. október 2021 15:16