Belgar unnu Dani í markaleik

Belgar fara áfram í úrslit Þjóðadeildarinnar.
Belgar fara áfram í úrslit Þjóðadeildarinnar. AFP

Belgía fer áfram í úrslit Þjóðadeildar UEFA í knattspyrnu eftir 4:2-heimasigur á Danmörku í lokaumferðinni í kvöld. Leikurinn var úrslitaleikur um toppsætið í riðlinum. Danir enda í öðru sæti, Englendingar í þriðja og Ísland rekur lestina á botninum.

Youri Tielemans kom Belgum yfir strax á þriðju mínútu en Jonas Wind jafnaði metin fyrir Dani stundarfjórðungi síðar. Belgar færðu sig hins vegar upp á skaftið eftir hlé og Romelu Lukaku skoraði tvö mörk, á 57. mínútu og 69. mínútu.

Thibaut Courtois markvörður Belga hleypti smá lífi í leikinn er hann skoraði sjálfsmark fimm mínútum fyrir leikslok en Kevin de Bruyne bætti við fjórða marki fyrir heimamenn mínútu síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert