Dregur saman á milli stóru flokkanna rétt fyrir kosningarnar í Þýskalandi Kjartan Kjartansson skrifar 23. september 2021 11:39 Auglýsingar fyrir þrjá stærstu flokkana í könnunum fyrir sambandsþingskosningarnar í Þýskalandi. Frá vinstri: Annalena Baerbock, leiðtogi Græningja, Olaf Scholz, leiðtogi jafnaðarmanna og Armin Laschet, leiðtogi kristilegra íhaldsmanna. AP/Michael Sohn Aðeins fjórum prósentustigum munar nú á fylgi jafnaðarmanna og Kristilega demókrataflokks Angelu Merkel, fráfarandi kanslara, þremur dögum fyrir sambandsþingkosningar í Þýskalandi. Dregið hefur saman með flokkunum á lokametrum kosningabaráttunnar.
Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD) mælist nú með 25% og hefur fylgið dregist saman um eitt prósentustig frá því í síðustu könnun, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Kosningarnar fara fram á sunnudag. Á sama tíma jókst stuðningur við bandalag kristilegra íhaldsflokka um eitt prósent. Kanslaraefni þess er Armin Laschet, arftaki Merkel sem ætlar að draga sig í hlé eftir sextán ár við stjórnvölinn. Kristilegir íhaldsmenn hafa lengi ráðið lögum og lofum í þýskum stjórnmálum og eru þekktir fyrir að styrkja sig eftir því sem nær dregur kjördegi. Því segir New York Times að Laschet eygi enn möguleika á sigri. Olaf Scholz, leiðtogi jafnaðarmanna, mælist enn með langmestan stuðning sem næsti kanslari Þýskalands. Hann er varakanslari og fjármálaráðherra í samsteypustjórn Merkel. Stuðningur við græningja hefur aðeins dalað en þeir mælast nú með sextán prósent. Hægriflokkurinn Frjálsir demókratar (FDP) eru fastir í ellefu prósentum. AP-fréttastofan segir að aukinn stuðningur við fjölda smáflokka sem soga fylgi frá þeim stærri gæti flækt stjórnarmyndun í ár. Þá er útlit fyrir að þingmönnum á sambandsþinginu fjölgi verulega vegna kosningalaga. Þingsætum gæti fjölgað úr 709 í átta hundruð eða jafnvel fleiri.
Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Fleiri fréttir Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Sjá meira