Fagnar því að neytandinn hafi haft sigur Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. desember 2020 21:21 Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakanna. Hægra megin á mynd sést Eames-hægindastóll, sambærilegur þeim sem málið varðar. Arnar/penninn Formaður Neytendasamtakanna fagnar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli konu, sem neitað var um að fá hægindastól afhentan sem hún greiddi að stærstum hluta fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Hann segir málið ódæmigert; flest mál sem tengist inneignarnótum og rati inn á borð samtakanna varði gildistíma.
Vísir fjallaði um dóm héraðsdóms í dag en málið varðar konu sem keypti Eames-hægindastól fyrir rétt rúma milljón króna hjá Pennanum sumarið 2018. Nær allt andvirði stólsins greiddi konan með inneignarnótum sem hún hafði öðlast með bóksölu á skiptibókamarkaði Pennans og gjafakorti. Enginn fyrirvari var gerður við greiðsluna og gefinn var út sölureikningur fyrir kaupunum. Síðar hafnaði Penninn því að afhenda konunni stólinn og sagði viðskiptin ekki hafa verið lögmæt. Pennanum var þó loks gert að afhenda konunni stólinn. „Veit ekki hvað Pennanum gengur til“ „Fyrstu viðbrögð eru að það sé gott að fyrirtækinu sé gert að taka við eigin gjafakortum og inneignarnótum, það finnst manni mjög eðlilegt. Og svo náttúrulega, eins og er í svona málum, eru vafaatriði dæmd neytandanum í hag, sem er líka eðlilegt gagnvart venjulegum neytendarétti,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. „Maður veit ekki hvað Pennanum gengur til að afhenda ekki vöruna, því samkvæmt þessari frétt þá er enginn ágreiningur um að hún gerði þennan kaupsamning og greiddi vöruna, með inneignarnótu, gjafabréfi og 18 þúsund krónum í reiðufé.“ Upphæðin einnig óvenjuleg Breki segir að hann hafi ekki fengið veður af sambærilegu máli áður. „Ég get ekki sagt að þetta sé dæmigert mál fyrir það sem við fáum til okkar. Þetta er óvenjulegt á marga vegu.“ Mál tengd gjafakortum og inneignarnótum sem koma á borð samtakanna varði yfirleitt gildistíma. „Oft á tíðum er skammur gildistími og við höfum verið að gagnrýna það mjög og hefðum viljað hafa einhvers konar samræmdan tíma. Mörg fyrirtæki eru farin að bjóða upp á ótakmarkaðan gildistíma, þ.e.a.s. að það rennur ekki út, önnur fyrirtæki standa enn á því að inneignarnótur renni út á einu ári. Við teljum að þetta eigi að vera eins og aðrar fjárkröfur,“ segir Breki. Ekki hefur enn reynt á gildistíma gjafabréfa eða inneignarnóta fyrir dómstólum „Við erum að bíða eftir einhverju slíku máli að fara með. En yfirleitt eru þetta ekki svona háar upphæðir eins og þetta, þetta eru yfirleitt einhverjir þúsundkallar eða tugir þúsunda að hámarki, en ekki milljón. Sem er líka ódæmigert fyrir þau mál sem koma til okkar. En við fögnum þessari niðurstöðu fyrir hönd neytandans.“
Neytendur Dómsmál Tengdar fréttir Fær loksins milljón króna hægindastólinn sem hún keypti með inneignarnótum Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Pennann ehf. í síðustu viku til að afhenda konu milljón króna hægindastól, sem hún greiddi nær alfarið fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Penninn vildi ekki afhenda konunni stólinn og bar því fyrir sig að konan hefði fengið inneignarnóturnar með „óeðlilegum hætti“ á skiptibókamarkaði, auk þess sem þær mætti ekki nota til húsgagnakaupa. 3. desember 2020 18:13 Ríflega 28 þúsund beiðnir um endurgreiðslu enn á borði Icelandair Icelandair hefur þegar endurgreitt hátt í 107 þúsund bókanir frá öllum markaðssvæðum félagsins frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á. Að baki hverri bókun og þar af leiðandi endurgreiðslubeiðnum getur verið fjöldi farþega. 25. ágúst 2020 16:45 ESB segir neytendur eiga skýlausan rétt á endurgreiðslu fyrir ferðir sem falla niður Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirstrikar í dag að flugfélög og seljendur pakkaferða verði að endurgreiða farþegum sínum falli ferðir þeirra niður. 13. maí 2020 11:03 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Viðskipti erlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Samstarf Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Viðskipti innlent Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Viðskipti innlent Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Kynning á yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri Sidekick Kaupa Íslensk verðbréf Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Sjá meira
Fær loksins milljón króna hægindastólinn sem hún keypti með inneignarnótum Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Pennann ehf. í síðustu viku til að afhenda konu milljón króna hægindastól, sem hún greiddi nær alfarið fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Penninn vildi ekki afhenda konunni stólinn og bar því fyrir sig að konan hefði fengið inneignarnóturnar með „óeðlilegum hætti“ á skiptibókamarkaði, auk þess sem þær mætti ekki nota til húsgagnakaupa. 3. desember 2020 18:13
Ríflega 28 þúsund beiðnir um endurgreiðslu enn á borði Icelandair Icelandair hefur þegar endurgreitt hátt í 107 þúsund bókanir frá öllum markaðssvæðum félagsins frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á. Að baki hverri bókun og þar af leiðandi endurgreiðslubeiðnum getur verið fjöldi farþega. 25. ágúst 2020 16:45
ESB segir neytendur eiga skýlausan rétt á endurgreiðslu fyrir ferðir sem falla niður Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirstrikar í dag að flugfélög og seljendur pakkaferða verði að endurgreiða farþegum sínum falli ferðir þeirra niður. 13. maí 2020 11:03